Stjórn Þórsteinssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þórsteinssjóði.
Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.
Umsóknarfrestur er til 8. nóvember 2021.
Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám við Háskóla Íslands á skólaárinu 2021-2022.
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er að hámarki 2 milljónir króna.
Í umsókn um námsstyrki þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
- Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
- Hvaða nám viðkomandi stundar við Háskóla Íslands.
- Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
- Áætlun um námsframvindu.
Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn Þórsteinssjóðs áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.
Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is.
Áætlað er að úthluta styrknum á afmælisdegi Þórsteins 3. desember nk.
Tilkoma Þórsteinssjóðs hefur aukið möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til að helga sig háskólanámi, en þetta er í 10. skipti sem úthlutað er úr sjóðnum.
Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á heimasíðu HÍ http://www.hi.is/ og sjóðavef HÍ http://sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnastjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.
-----
Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands til minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins, að efla líf blindra og sjónskertra einstaklinga á Íslandi.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
