Lögð hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði tekinn í íslensk lög.
Íslenska ríkið fullgilti samning SÞ árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að tryggja fötluðu fólki öll þau réttindi til fulls sem þar er mælt fyrir um. Langflest ríki í heiminum höfðu fullgilt samninginn þegar íslenska ríkið gerði það. Fullgilding samningsins var mikilvægur áfangi í að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri sem flestu ófötluðu fólki þykja sjálfsögð.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var tekinn í íslensk lög árið 2013. Það var gert til að tryggja enn betur en gert var með fullgildingu samningsins þau réttindi sem sá samningur mælir fyrir um. Sömu rök eiga við um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Með því að lögfesta samninginn verður mannréttindum fatlaðs fólks veitt aukin vernd og réttaröryggið eykst. Fatlaður einstaklingur getur þá borið ákvæði samningsins fyrir sig sem ótvíræða réttarreglu fyrir dómi eða stjórnvöldum. Lögfesting mun vekja jafnt almenning og þá sem fjalla um málefni fatlaðs fólks fyrir dómstólum, í stjórnsýslu og við undirbúning að lagasetningu, til frekari vitundar um mannréttindi fatlaðs fólks og þá virðingu sem verður að ætlast til að þeim sé sýnd í réttarríki. Lögfesting samningsins um fatlað fólk mun og auka, á alþjóðavettvangi, traust á virðingu íslenska ríkisins fyrir mannréttindum fatlaðs fólks.
Landssamtökin Þroskahjálp styðja þessa þingsályktunartillögu heilshugar og skora á Alþingi að samþykkja hana. Samtökin þakka Ágústi Ólafi Ágústssyni, alþingismanni og þeim þingmönnum sem flytja tillöguna með honum fyrir frumkvæðið og stuðninginn við mannréttindi fatlaðs fólks.
Þingsályktunartillöguna má nálgast hér
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
