Þroskahjálp merki
EN

Mikilvægur sigur í tveimur málum sem varða rétt fatlaðs fólks á biðlista eftir húsnæði.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða tveimur einstaklingum á biðlista eftir húsnæði bætur vegna skorts á upplýsingagjöf á biðtíma.

Birt þann:

09.04.2026

Mikilvægur sigur í tveimur málum sem varða rétt fatlaðs fólks á biðlista eftir húsnæði.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða tveimur einstaklingum á biðlista eftir húsnæði bætur vegna skorts á upplýsingagjöf á biðtíma. Málin tvö eru meðal sjö mála sem höfðuð voru með aðstoð Landssamtakanna Þroskahjálpar til að fá skorið úr um bótarétt einstaklinga á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði, en Reykjavíkurborg hafði áður hafnað bótakröfum hlutaðeigandi einstaklinga.

Með dómum Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðnir voru upp var fallist á bótaskyldu. Dómarnir staðfesta fyrri fordæmi um að sveitarfélögum sé skylt að upplýsa umsækjendur á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði um það hvenær fyrirhugað sé að húsnæði geti verið tilbúið og að skortur á slíkri upplýsingagjöf af hálfu sveitarfélags geti varðað bótaskyldu.

„Þessi niðurstaða er mikilvæg staðfesting á því að fatlað fólk á ekki að þurfa að búa við langvarandi óvissu á biðlista án skýrra upplýsinga um stöðu sína, rétt og næstu skref. Hér er ekki aðeins um lagalegt álitaefni að ræða heldur líka spurningu um virðingu, ábyrgð og mannréttindi. Þótt málið hafi verið höfðað gegn Reykjavíkurborg þá vitum við að sambærileg staða hefur verið uppi í allt of mörgum öðrum sveitarfélögum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og víða um land,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Landssamtökin Þroskahjálp átti þátt í að upplýsa félagsmenn sína um að þeir kynnu að eiga þennan bótarétt og styðja þá í að sækja rétt sinn. Samtökin telja dóminn því mikilvægan, ekki aðeins fyrir þá einstaklinga sem eiga beint hlut að máli, heldur einnig fyrir marga aðra sem hafa setið of lengi í óvissu á biðlista eftir viðeigandi úrræði.

Þess ber að geta að jákvæð þróun hefur átt sér stað varðandi upplýsingagjöf til fatlaðs fólks á biðlista hjá Reykjavíkurborg eftir að málin voru höfðuð. Það breytir þó ekki því að skýrar skyldur sveitarfélaga gagnvart fólki í þessari stöðu þurfa ávallt að vera virtar.

Rétt er að hafa í huga að niðurstaðan er ekki endanleg að svo stöddu, þar sem Reykjavíkurborg hefur frest til að sækja um áfrýjunarleyfi til Landsréttar.

Hlekkir á dómana:

Dómur 1

Dómur 2

Hlekkur á viðtal við formann v. málsins á sínum tíma:

Viðtal á RUV

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt