Þroskahjálp merki
EN

Mikilvægt framlag fatlaðra barna á barnaþingi

Unnur Helga formaður Þroskahjálpar og Anna Lára verkefnastjóri í málefnum barna og ungmenna hjá Þroskahjálp skrifa um mikilvæg skilaboð barnaþings

Birt þann:

31.05.2022

Mikilvægt framlag fatlaðra barna á barnaþingi

Mikilvægt framlag fatlaðra barna á barnaþingi

Í síðustu viku afhentu sex börn úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, ráðherrum skýrslu barnaþings 2022. Í skýrslunni eru dregnar fram helstu niðurstöður barnaþingsins sem haldið var í byrjun mars. Þar á meðal mikilvægi þess að standa vörð um réttindi fatlaðra barna.

Þetta er í annað sinn sem Barnaþing er haldið. Það er umboðsmaður barna sem annast utanumhald og framkvæmd þingsins og er markmiðið að skapa reglubundinn vettvang fyrir börn til þess að koma skoðunum sínum og sjónarmiðum á framfæri, efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni er varða börn og ungmenni. Barnaþingi er ætlað að vera valdeflandi og jákvæð reynsla fyrir börnin. Landssamtökin Þroskahjálp hafa átt farsælt samstarf við umboðsmann barna um að tryggja þátttöku fatlaðra barna og þá um leið að rödd þeirra heyrist í þessu mikilvæga samráðsferli.

Barnaþingmenn eru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og þar eru auðvitað börn sem spegla margbreytileika barna á Íslandi. En til að tryggja með öruggum hætti þátttöku fatlaðra barna hafa Landssamtökin Þroskahjálp tilnefnt börn til þátttöku, óháð úrtakinu. Að þessu sinni tóku þátt fimm barnaþingmenn sem tilefndir voru af Þroskahjálp. Bæði í samráðshópi sem hafði það verkefni að koma með hugmyndir um aðgengismál, framkvæmd og vellíðan barna sem tóku þátt og á þinginu sjálfu. Ráðinn var sérstakur starfsmaður til þess að vera börnunum innan handar og vera skipuleggjendum ráðgefandi um framkvæmdina.

Landssamtökin Þroskahjálp leggja sérstaklega áherslu á að standa vörð um réttindi fatlaðra barna og tækifæri þeirra til virkrar þátttöku til jafns við önnur börn og án aðgreiningar. Markmið samtakanna í þessu verkefni er að þau fötluðu börn sem taka þátt fái tækifæri til þess að koma skoðunum sínum á framfæri, að þau séu fullgildir þátttakendur og fái viðeigandi stuðning. Var í því sambandi sérstaklega horft til 23. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem fjallað er um stöðu fatlaðra barna, en einnig til 7. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en þar segir:

1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið fullra mannréttinda og mannfrelsis til jafns við önnur börn.

3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja miðað við aldur þeirra og þroska, til jafns við önnur, börn og veita þeim aðstoð, þar sem tekið er eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs, til þess að sá réttur megi verða að veruleika.

Á þinginu í mars völdu þátttakendur þrjú þemu sem fjallað var ítarlega um: mannréttindi, menntun og umhverfis- og loftslagsmál. Mikilvægi þess að styðja fötluð börn sérstaklega til þátttöku sýndi sig í því að þingmenn lögðu mikla áherslu á réttindi fatlaðra barna og mikilvægi þess að taka tillit til mismunandi fatlana, upprætingu fordóma, aðgengismál og mikilvægi þessi að allir fái stuðning til þess að taka þátt og njóta sín á eigin forsendum.

Landssamtökin Þroskahjálp senda barnaþingmönnum og umboðsmanni barna sérstakar þakkir fyrir ánægjulegt og mikilvægt samstarf.

Unnur Helga Óttarsdóttir er formaður Þroskahjálpar.

Anna Lára Steindal, verkefnisstjóri í málefnum barna og ungmenna.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt