Þroskahjálp merki
EN

Meinlaust?

Meinlaust? fyrir birtingarmyndir öráreitni sem fatlað fólk verður fyrir í samfélaginu og er tilgangurinn að fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingum sem öráreitni hefur í för með sér.

Birt þann:

26.05.2023

Meinlaust?

Í vikunni hleypti Jafnréttistofa aftur af stað vitundarvakningarherferð sinni, Meinlaust?, og nú í samstarfi við Þroskahjálp. Áður hefur vitundavakningin vakið athygli á birtingarmyndum kynbundinnar kynferðislegrar áreitni í samfélaginu og birtingarmyndum öráreitni sem hinsegin fólk verður fyrir í samfélaginu í samstarfi við Samtökin 78.

Nú tekur Meinlaust? fyrir birtingarmyndir öráreitis sem fatlað fólk verður fyrir í samfélaginu og er tilgangurinn að fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingum sem öráreitni hefur í för með sér.

Í vitundarvakningunni eru sagðar sögur sem byggðar eru á raunverulegum frásögnum fatlaðs fólks úr íslensku samfélagi í formi myndasagna. Áhersla er lögð á samfélagsmiðla þar sem fólk er hvatt til að taka þátt í umræðunni og deila eigin reynslu undir myllumerkinu #meinlaust eða með því að merkja @meinlaust.

Einnig er farið yfir hugtök þessu tengd, á borð við öráreitni, barnvæðing og ableismi.
Í tilkynningu frá Jafnréttisstofu segir:

„Fatlað fólk verður oft fyrir öráreitni sem lýsir sér m.a. með að talað er um og við fullorðið fatlað fólk eins og það sé börn. Hugtakið barnvæðing er notað yfir slíka framkomu. Barnvæðing felur í sér hugmyndir um að fatlað fólk sé ekki hæft til að taka ákvarðanir í eigin lífi. Hún getur birst t.d. í því að tala í barnalegum tón, hrósa fyrir hversdagslega hluti eða taka fram fyrir hendur þess.

Rót barnvæðingar liggur í ableisma sem er hugtak sem lýsir mismunun og fordómum gagnvart fötluðu fólki. Það einkennist af því að fatlað fólk er talið gallað eða minna virði en ófatlað fólk. Það getur verið erfitt að koma auga á ableisma þar sem hann er oft falinn og fatlað fólk á jafnvel erfitt með að benda á hann þar sem ófatlað fólk vill yfirleitt ekki kannast við hann."

Við hvetjum ykkur til að fylgjast með á instagram síðu Þroskahjálpar og instagram síðunni @Meinlaust.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt