Þroskahjálp merki
EN

Með okkar augum drullast fyrir Þroskahjálp (Myndband)

"Drullastu til að leggja góðu málefni lið", voru einkunnarorð þeirra sem lögðu leið sína að höfuðstöðvum Tjarnargötunnar fyrir síðustu helgi en þangað flykktust þjóðþekktir einstaklingar úr hinum ýmsu áttum, allt frá vinsælum tónlistarmönnum til þrautseigra alþingismanna. Öll áttu þau það sameiginlegt að vera þangað komin til þess eins að fá framan í sig drullu. Sjónvarpsfólkið úr þáttunum Með okkar augum drullaðist til að vera með og styðja Þroskahjálp

Birt þann:

22.07.2013

Með okkar augum drullast fyrir Þroskahjálp (Myndband)

"Drullastu til að leggja góðu málefni lið", voru einkunnarorð þeirra sem lögðu leið sína að höfuðstöðvum Tjarnargötunnar fyrir síðustu helgi en þangað flykktust þjóðþekktir einstaklingar úr hinum ýmsu áttum, allt frá vinsælum tónlistarmönnum til þrautseigra alþingismanna. Öll áttu þau það sameiginlegt að vera þangað komin til þess eins að fá framan í sig drullu. Sjónvarpsfólkið úr þáttunum Með okkar augum drullaðist til að vera með og styðja Þroskahjálp

"Drullastu til að leggja góðu málefni lið, voru einkunnarorð þeirra sem lögðu leið sína að höfuðstöðvum Tjarnargötunnar fyrir síðustu helgi en þangað flykktust þjóðþekktir einstaklingar úr hinum ýmsu áttum, allt frá vinsælum tónlistarmönnum til þrautseigra alþingismanna. Öll áttu þau það sameiginlegt að vera þangað komin til þess eins að fá framan í sig drullu. Þó í mun bókstaflegri merkingu heldur en þau allajafna hafa hingað til átt að venjast. Ástæðan er sú að Mýrarboltinn er þegar farinn að rúlla en eins og flestir vita fer fram árlegt Mýrarboltamót á Ísafirði um Verslunarmannahelgina. Sjónvarpsfólkið úr þáttunum Með okkar augum drulluðust til að vera með og styðja gott málefni.

Tilgangur heimsóknar þessa fólks var þó ekki einskorðaður við sérlegan áhuga á drullumalli í sinni tærustu mynd, heldur var um að ræða hvata til góðverka. Á morgun, mánudag , fer af stað skemmtilegt verkefni hér inn á vísir.is þar sem fólki gefst kostur á að fylgjast með þessu hugrakka fólki fá drulluna í andlitið og styrkja á sama tíma við bakið á góðgerðafélögum. Um er að ræða fjögur félög að þessu sinni, sem valið er á milli, Þroskahjálp, ADHD samtökin, Barnaheill, Save the Children á Íslandi og MND félagið á Íslandi.

Ein milljón króna til góðgerðamála

Mýrarboltinn í samstarfi við Landsbankann, Avis bílaleigu og Carlsberg hafa lagt til eina milljón króna í sjóð sem svo verður deilt niður á félögin fjögur. Almenningur getur haft áhrif á ráðstöfun þessa sjóðs með því að fara inná visir.is/drullastu og kjósa það félag sem viðkomandi þykir að eigi rétt á stæðstum hluta kökunnar. Netverjar eru eindregið hvattir til að deila upplifun sinni áfram í gegnum þartilgerðan Facebook vinkil til að sem flestir láti til sín taka í valinu á milli félaga. Rúsínan í pylsuendanum felst svo í að sjá þetta framáfólk verða fyrir barðinu á alvöru íslenskri drullu.

Slóðin er www.visir.is/drullastu og við hjá Þroskahjálp treystum á þig til að drullast til að leggja okkur lið.

Myndband eða innfellt efni

Hægt er að sjá fleiri myndbönd á fésbókarsíðu Þroskahjálpar með því að smella hér en þar munu þau birtast næstu daga.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt