Sjónvarpsþættirnir "Með okkar augum" eru tilnefndir til Edduverðlauna í ár í flokknum menningar- eða lífsstílsþættir. Þættirnir voru framleiddir af Landssamtökunum Þroskahjálp.
Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda, en þeir hafa verið sýndir á RUV. Alls hafa verið gerðir 12 þættir og stefnt er að því að ný þáttaröð verði sýnd í sumar.
Sérstaða þáttanna er sú að fólk með þroskahömlun er beggja vegna linsunnar, þ.e. sjá um dagskrárgerð, tökur, kynningar o.fl. en njóta aðstoðar fagfólks. Elín Sveinsdóttir hefur umsjón með gerð þáttanna.
Þættirnir hafa hlotið fjölda viðurkenninga m.a. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, hvatningarverðlaun ÖBÍ og "Múrbrjóta" Þroskahjálpar.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
