Þroskahjálp merki
EN

Marglitur mars hjá Einhverfusamtökunum

Einhverfusamtökin standa fyrir verkefninu „Marglitur mars“ þessa dagana, til að vekja athygli á fjölbreytileika einhverfurófsins.

Birt þann:

22.03.2022

Marglitur mars hjá Einhverfusamtökunum

Þessa dagana er í gangi verkefnið „Marglitur mars“ á vegum Einhverfusamtakanna, til að vekja athygli á fjölbreytileika einhverfurófsins.

Hugmyndin að baki verkefninu byggir á fjölbreytileika einhverfurófsins og þeirri margbreytilegu listsköpun og frumleika sem þar er að finna. Í forgrunni er fjölbreyttur hópur listafólks og skapandi einstaklinga á einhverfurófi og leyfum við verkum þeirra að tala. Kynning er hafin á listafólkinu og verkum þeirra á samfélagsmiðlum Einhverfusamtakanna og er allur undirbúningur og framkvæmd í höndum einhverfra einstaklinga.

Í tilkynningu frá Einhverfusamtökunum segir: „Undanfarin ár höfum við orðið vör við aukinn kvíða meðal einhverfra í aðdraganda aprílmánuðar, þar sem mörg okkar upplifa vitundarvakningu tengda bláum lit með neikvæðum hætti. Á alþjóðavísu hefur einhverfusamfélagið valið sér regnbogalitað eilífðarmerki sem einkennistákn, til að endurspegla óendanlegan fjölbreytileika rófsins. “

Listsýning verður haldin 2. og 3. apríl í húsnæði Hamarsins, ungmennahúss, að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði og er kynning hafin á listafólkinu á samfélagsmiðlum samtakanna.

Nánari upplýsingar má finna á vef Einhverfusamtakanna.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt