Mannréttindi og metnaðarleysi, hvað eru mannréttindi?
Í Kjarnanum birtist grein eftir formann og framkvæmdastjóra samtakanna. Mannréttindi eru tiltekin lagaleg réttindi sem er viðurkennt að eru öllu fólki svo mikilvæg að þjóðir heims hafa komið sér saman um að öll ríki verði að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að allir fái notið þessara réttinda, alltaf og alls staðar. Nils Muinieks, mannréttindafulltrúi Evrópurásðins, var í heimsókn á Íslandi fyrr í þessum mánuði til að kynna sér ástand mannréttindamála. Að lokinni heimsókninni ræddi hann við fjölmiðla og sagðist þar furða sig á metnaðarleysi Íslendinga í mannréttindamálum. Hann sagði m.a.: Ég tel Ísland vera auðugt land miðað við mörg þeirra landa sem ég hef komið til. Hér ríkir lýðræði og það á sér langa sögu hér og það kemur mér á óvart að þið hafið ekki sýnt meiri metnað við að axla þessa ábyrgð og stefna að framförum.
Birt þann:
29.06.2016



