Þroskahjálp merki
EN

Málþing: Vefhönnun og siðfræði við hönnun þjónustu- og tæknilausna

Ský, félag fólks og fyrirtækja í upplýsingatækni, stendur fyrir málþingi um vefhönnun, siðfræði og aðgengismál. Þroskahjálp tekur þátt í málþinginu.

Birt þann:

29.08.2022

Málþing: Vefhönnun og siðfræði við hönnun þjónustu- og tæknilausna

Ský, félag fólks og fyrirtækja í upplýsingatækni, stendur fyrir málþingi um vefhönnun, siðfræði og aðgengismál. Þroskahjálp tekur þátt í málþinginu.

Vefurinn er eitt lykilatriða þess að fylgjast með því sem er að gerast í samfélaginu. Verslun og þjónusta í bland við almennar upplýsingar og afþreyingu hefur í auknum mæli færst yfir á vefinn. En hverjir geta tekið þátt? Hvenær er verið að hanna fyrir notandann og er ásættanlegt að hanna lausnir fyrir suma en ekki alla? Er algild hönnun möguleg eða skylda?

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, verkefnastjóri Þroskahjálpar, talar á málþinginu og fjallar þar um hvernig oft er rætt um tæknilausnir og stafræna framþróun eins og stóra lykilinn að samfélagi án hindrana. Miklar vonir eru bundnar við snjöll hjálpartæki, raddstýringar, tækni sem ekki geri mannamun og fleiri lausnir sem bæði eigi að einfalda líf fólks og lækka kostnað í velferðarþjónustu. Inga mun segja frá reynslu fatlaðs fólks, og sér í lagi fólks með þroskahömlun, af þessari nýju veröld.

Þroskahjálp hefur verið leiðandi afl í baráttunni fyrir aðgengi fólks með þroskahömlun að stafrænum heimi, og þar með talið að rafrænum skilríkjum. Skyldur stjórnvalda eru ríkar og það er ólíðandi að stafræn framþróun haldi áfram af fullum þunga, án þess að tryggja að réttindi og þarfir fatlaðs fólks séu tryggðar.

Frekari upplýsingar og skráningar á vef Ský.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt