Þroskahjálp merki
EN

Málefni fatlaðs fólks í þínu sveitarfélagi - kosningar 2014

Næstu sveitarstjórnakosningar eru sögulegar fyrir fatlað fólk. Þær eru fyrstu kosningar eftir að sveitarfélögin í landinu tóku við sértækri félagsþjónustu fyrir fatlað fólk, frá ríkinu. Gera má ráð fyrir því að margir, ekki síst fatlað fólk og aðstandendur þeirra, vilji fá að vita hvernig framboðin í einstökum sveitarfélögum sjá framtíðaruppbyggingu þessarar þjónustu í sínu sveitarfélagi.

Birt þann:

31.05.2014

Næstu sveitarstjórnakosningar eru sögulegar fyrir fatlað fólk. Þær eru fyrstu kosningar eftir að sveitarfélögin í landinu tóku við sértækri félagsþjónustu fyrir fatlað fólk, frá ríkinu.

Gera má ráð fyrir því að margir, ekki síst fatlað fólk og aðstandendur þeirra, vilji fá að vita hvernig framboðin í einstökum sveitarfélögum sjá framtíðaruppbyggingu þessarar þjónustu í sínu sveitarfélagi.

Því er við hæfi að væntanlegir sveitarstjórnamenn geri kjósendum sínum grein fyrir hvernig þeir hyggist standa að þessari þjónustu á næsta kjörtímabili fái þeir til þess umboð.

Til að auðvelda kjósendum að kynna sér stefnu flokkanna hafa Landssamtökin Þroskahjálp, Blindrafélag Íslands og Sjálfsbjörg landsambandið ákveðið að bjóða framboðunum að birta stefnu þeirra í þessum málaflokki á heimasíðum samtakanna og koma þeim á framfæri á fésbókarsíðum sínum.

Vonumst við eftir að fleiri framboð sendi okkur svör sín á næstunni og munum við bæta þeim við um leið.

Undir "Þjónusta" hér á síðu Þroskahjálpar er hægt að finna "X-2014 - Kosningar" eða smella hér.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt