Þroskahjálp merki
EN
Réttindi

Samningurinn er orðinn að lögum

Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 12. nóvember 2025. Réttindin í samningnum eru nú hluti af íslenskum lögum.

Þroskahjálp hafði barist fyrir lögfestingunni í mörg ár. Hér er farið yfir hvað samningurinn er, hvað breytist með lögunum og hvað tekur við.

Teikning af Alþingishúsinu.
Húrra! Alþingi hefur lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Hvað er samningurinn?

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er alþjóðlegur mannréttindasamningur. Hann áréttar að fatlað fólk eigi að njóta sömu mannréttinda og annað fólk og hafa raunveruleg tækifæri til að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Áherslan er á virðingu, sjálfstæði og jafnrétti.

Í samningnum eru engin sérréttindi fyrir fatlað fólk. Hann undirstrikar aðeins að fatlað fólk á að njóta sömu réttinda og allir aðrir. Flóknara er það ekki.

Ísland undirritaði samninginn árið 2007 og fullgilti hann árið 2016. Með lögfestingunni fékk hann lagagildi hér á landi.

Hvað breytist við lögfestinguna?

Lögin eru mikilvægt tæki í baráttunni fyrir því að fatlað fólk fái raunveruleg tækifæri til fullrar þátttöku í íslensku samfélagi, án aðgreiningar og til jafns við aðra. Meðal þess sem lögfestingunni fylgir:

  • Samningurinn er réttarheimild. Það er hægt að byggja á honum fyrir dómstólum og öðrum sem úrskurða í málum.
  • Réttindin vega þyngra. Mannréttindi fatlaðs fólks og allt sem samningurinn kveður á um fá aukið lagalegt vægi.
  • Það er samfélagið sem þarf að breytast. Fötlun verður til í samspili skerðinga og hindrana í umhverfi sem gerir ekki ráð fyrir fjölbreyttum þörfum. Það á því ekki að ætlast til þess að fatlað fólk lagi sig að aðstæðum.
  • Aðgengi á öllum sviðum. Skylt er að tryggja aðgengi alls staðar í samfélaginu.
  • Samráð. Skyldan til að hafa samráð við fatlað fólk og samtökin sem koma fram fyrir þess hönd verður skýrari.
  • Vernd gegn mismunun. Fatlað fólk nýtur betri verndar gegn mismunun á grundvelli fötlunar.

Leiðin að lögunum

  • 2007: Ísland undirritar samninginn.
  • 2016: Ísland fullgildir samninginn.
  • 2019: Alþingi samþykkir þingsályktun um að samningurinn skuli lögfestur, eigi síðar en 13. desember 2020. Ágúst Ólafur Ágústsson var fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
  • 12. nóvember 2025: Alþingi samþykkir lögin með 45 atkvæðum. Enginn greiðir atkvæði á móti og fimm sitja hjá. Lögin, nr. 80/2025, taka gildi strax.
  • 20. júní 2026: Valfrjálsa bókunin við samninginn tekur gildi gagnvart Íslandi.

Næsta skref varð að veruleika

Þegar samningurinn var lögfestur var næsta baráttumál Þroskahjálpar valfrjálsa bókunin við hann. Ísland undirritaði bókunina árið 2007 en fullgilti hana ekki fyrr en árið 2026.

Bókunin gerir fötluðu fólki og samtökum þess kleift að leita til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, telji þau að íslensk stjórnvöld hafi brotið á réttindum þeirra samkvæmt samningnum. Fyrst þarf að hafa reynt þær leiðir sem eru færar hér á landi.

  1. 1Frétt Þroskahjálpar: Valfrjálsa bókunin fullgild
  2. 2Frétt Stjórnarráðsins um bókunina

Takk

Þroskahjálp þakkar heilshugar öllum sem börðust af eldmóði, þrautseigju og hugrekki fyrir því að samningurinn yrði lögfestur. Mestan heiður á fatlað fólk, sem hefur þurft og þarf enn að berjast fyrir mannréttindum sínum í íslensku samfélagi.

Fleiri lögðu lóð á vogarskálarnar. Þar má nefna Ágúst Ólaf Ágústsson, fyrrverandi alþingismann, sem flutti þingsályktunartillöguna um lögfestingu og fylgdi henni ötullega eftir þar til hún var samþykkt. Einnig ráðherrana Guðmund Inga Guðbrandsson og Ingu Sæland, og Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, formann velferðarnefndar, sem lögðu mikið á sig til að knýja á um lögfestinguna.

Enn er verk að vinna

Lögfestingin er stórt skref í átt að jöfnum tækifærum og betri lífsgæðum. Nú þarf að tryggja að réttindin skili sér í daglegu lífi fatlaðs fólks.

Kynntu þér leiðir til að styrkja starf Þroskahjálpar og standa vörð um réttindi fatlaðs fólks.

Styrktu baráttuna

Meira um samninginn

  • Á auðskildu máli

    Samningurinn útskýrður á auðskildu máli.

    Lesa
  • Lögin á vef Alþingis

    Lög nr. 80/2025, með samningnum í heild sem fylgiskjali.

    Lesa
  • Á vef Stjórnarráðsins

    Um samninginn og framkvæmd hans.

    Lesa