Þroskahjálp merki
EN

Listasýning: Heimurinn eins og hann er — heimurinn eins og hann birtist þér.

Á Barnamenningarhátíð settu fjögur fötluð ungmenni upp listasýningu undir yfirskriftinni Heimurinn eins og hann er — heimurinn eins og hann birtist þér.

Birt þann:

28.04.2023

Listasýning: Heimurinn eins og hann er — heimurinn eins og hann birtist þér.

Á Barnamenningarhátíð settu fjögur fötluð ungmenni upp listasýningu undir yfirskriftinni Heimurinn eins og hann er — heimurinn eins og hann birtist þér.

Listafólkið opnaði á sýningunni dyrnar að eigin veröld og buðu gestum að ganga inn og upplifa margbreytileikann. Verkin á sýningunni urðu til í listaflæði á vegum Þroskahjálpar.

Sýningin var haldin á Ásmundarsafni og var opnun hennar á sumardaginn fyrsta.

Við hjá Þroskahjálp erum gífurlega stolt af sýningunni og listamönnunum sem að henni stóðu. Við þökkum listafólkinu fyrir gott og skapandi samstarf!

Hér kynnum við listamennina:

Birta Möller Óladóttir

Birta er 13 ára, hún er nemandi í 7.bekk í Klettaskóla. Hún hefur mikinn áhuga á myndlist og elskar að mála og teikna. Hún notar mest tússliti og vatnsliti í verkin sín . Dans og tónlist er í miklu uppáhaldi hjá Birtu og er hún syngjandi og dansandi alla daga. Eurovison tímabilið er því eins og jólin hjá henni þar sem hún syngur og dansar og lærir öll atriðin. Birta hefur mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur drottningum og er hún oft kölluð Queen B.

Hjörtur Hlíðkvist Ragnarsson

Hjörtur er 13 ára nemandi í Foldaskóla, glaður, ljúfur og mikill ævintýradrengur og elskar að kanna nýjar slóðir.

Hann elskar að teikna og búa til myndbönd, taka myndir og búa til fígúrur, syngja og rúnta um nytjamarkaði og leita að einhverju merkilegu. Allt sem tengist Toy story hefur heillað hann lengi enda kann hann allar myndirnar utanbókar.

Jón Davíð Björgvinsson

Jón Davíð er 14 ára, fyrir nokkru síðan fékk hann áhuga á ljósmyndun. Jón hefur gaman af því að taka alskonar myndir en landslag og fossar eru hans uppáhald.

Júlíus Bjarki Hanssen

Júlíus Bjarki er 14 ára nemi við Klettaskóla, er Vesturbæingur og er oftast kallaður Júlli. Honum finnst mjög gaman að fara í gönguferðir og fer þá oft í miðbæinn þar sem hluti myndanna er tekinn. Júlli elskar vatn, fara í sund, sigla á árabát á sumrin, sulla í fjörunni eða lækjum út í móa. Hann er mikill aðdáandi Latabæjar og uppáhalds lagið um þessar mundir er Gangman style.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt