Auglýst er eftir tilnefningum til listamanns Listar án landamæra 2014. Árið 2013 var það listamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson sem hlaut titilinn og prýddu verk hans allt kynningarefni hátíðarinnar.
Auglýst er eftir tilnefningum til listamanns Listar án landamæra 2014. Árið 2013 var það listamaðurinn Atli Viðar Engilbertsson sem hlaut titilinn og prýddu verk hans allt kynningarefni hátíðarinnar.
Tilnefningar og ábendingar sendist í tölvupósti á netfangið: listanlandamaera@gmail.com fyrir 1.desember 2013. Senda þarf fjórar myndir af verkum eftir listamanninn og ferilskrá sem rekur fyrri sýningar og listræn störf. Að auki skal fylgja nafn, símanúmer og netfang hjá listamanninum eða tengilið.
Stjórn Listar án landamæra
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
