Þroskahjálp merki
EN

Lifandi tækni

Það var góð stemming á Lifandi tækni, málþingi Þroskahjálpar um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð, sem fram fór á Hótel Reykjavík Grand laugardaginn 19. október.

Birt þann:

13.11.2024

Lifandi tækni

Það var góð stemming á Lifandi tækni, málþingi Þroskahjálpar um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð, sem fram fór á Hótel Reykjavík Grand laugardaginn 19. október.

Fullt var út úr dyrum og nýjar hugmyndir og nýr skilningur varð til í samtali milli fatlaðs fólks, fólks í tæknigeiranum, fólks í háskólasamfélaginu, fulltrúa stjórnvalda og annarra sem hafa áhuga á jafnrétti, aðgengi að samfélagi, og betri tækni fyrir öll.

Upptaka af málþinginu

Myndband eða innfellt efni

Málþingið var með nýju og óhefðbundnu sniði, en Þroskahjálp er í góðri samvinnu við Átak – félag fólks með þroskahömlun um að finna og þróa leiðir til að viðburðir séu sannarlega aðgengilegir öllu fólki: umræðuefni, framsetning og fyrirkomulag.

Í stað glærukynninga fór umræðan fram í sófaspjalli, þar sem fatlað fólk úr stjórn Átaks og Þroskahjálpar leiddi samtalið.

Lifandi tækni - Ólafur Snævar leiðir samtal við Ingva og Möggu Dóru

Ólafur Snævar, stjórnarmeðlimur hjá Þroskahjálp,
leiðir samtal við Ingva Guðmundsson, hönnunarstjóra hjá Gangverki,
og Möggu Dóru Ragnarsdóttur, stafrænan hönnunarleiðtoga hjá Mennskri ráðgjöf

Í salnum voru teiknarar sem jafnóðum teiknuðu á blöð það sem fram fór á málþinginu. Í hléum gafst þátttakendum tækifæri að skoða hugmyndir og áherslupunkta á teiknuðu formi, og ræða þá við aðra gesti. Teiknarar voru þau Rán Flygenring, Vilmundur Gunnarsson og Katja Helgadóttir. Ljósmyndir á málþinginu tók Víðir Björnsson.

Lifandi tækni - teikningar eftir Rán Flygenring

Teikningar af efni málþingsins eftir Rán Flygenring

Um leið og við þökkum gestum og þátttakendum kærlega fyrir komuna hlökkum við til að halda samtalinu áfram.
Við erum rétt að byrja.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt