Þroskahjálp merki
EN

LANDSSAMTÖKIN ÞROSKAHJÁLP 40 ÁRA (Auðskilinn texti)

Landssamtökin Þroskahjálp verða 40 ára á þessu ári. Aðalmarkmið Þroskahjálpar er: Að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum fólks með þroskahömlun sem og annarra fatlaðra, barna og fullorðinna og tryggja þeim fulla jafnréttisstöðu á við aðra þjóðfélagsþegna.

Birt þann:

22.01.2016

LANDSSAMTÖKIN ÞROSKAHJÁLP 40 ÁRA (Auðskilinn texti)

Landssamtökin Þroskahjálp verða 40 ára á þessu ári. Aðalmarkmið Þroskahjálpar er: Að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum fólks með þroskahömlun sem og annarra fatlaðra, barna og fullorðinna og tryggja þeim fulla jafnréttisstöðu á við aðra þjóðfélagsþegna.

LANDSSAMTÖKIN ÞROSKAHJÁLP 40 ÁRA. (Auðskilinn texti)

Landssamtökin Þroskahjálp verða 40 ára á þessu ári.

Aðalmarkmið Þroskahjálpar er:

Að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum fólks með þroskahömlun sem og annarra fatlaðra, barna og fullorðinna og tryggja þeim fulla jafnréttisstöðu á við aðra þjóðfélagsþegna.

Þroskahjálp er málsvari fatlaðs fólks.

Þroskahjálp á að hjálpa fötluðu fólki að gæta hagsmuna og réttinda sinna

Þroskahjálp vinnur eftir mannréttindum eins og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Sérstök áhersluatriði hjá Þroskahjálp eru þessi:

  • Virða ber manngildi, grunnþarfir og rétt allra manna.
  • Fósturskimun skal beitt í þjónustu lífsins.
  • Allir eiga rétt til að hafa áhrif á eigið líf.
  • Allir eiga réttá að taka eigin ákvarðanir.
  • Allir sem þurfa, eiga rétt á stuðningi til að fá sömu tækifæri og aðrir.
  • Allir eiga rétt á menntun við hæfi og án aðgreiningar.
  • Allir eiga rétt á eigin heimili.
  • Allt fullorðið fólk á rétt á að stofna fjölskyldu.
  • Allt fullorðið fólk á rétt á vinnu.
  • Allir eiga rétt á að njóta efnalegs öryggis.
  • Allir eiga rétt á að njóta menningar og frístunda.
  • Allir eiga rétt á að njóta efri ára með reisn.

Rúmlega 20 félög eru í Landssamtökunum Þroskahjálp.

  • Félag fólks með þroskahömlun.
  • Foreldra- og styrktarfélög.
  • Landshlutafélög Þroskahjálpar.
  • Fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjónustu við fatlað fólk.

Félögin starfa víða á landinu og eru félagsmenn þeirra um 6000.

Félög þurfa að vinna að markmiðum Þroskahjálpar til að geta orðið aðilar að samtökunum.

Landssamtökin Þroskahjálp eru með heimasíðu og á facebook.

Auk þess gefa þau út tímaritið Þroskahjálp þrisvar sinnum á ári.

Á þessum miðlum eru upplýsingar um starfsemi og baráttumál samtakanna.

Samtökin reka húsbyggingasjóð til að hjálpa fólki að fá hentugt húsnæði og betri möguleika til sjálfstæðis og eðlilegs lífs.

Ýmislegt hefur áunnist í réttindabaráttu fatlaðs fólks á þeim 40 árum sem Þroskahjálp hefur verið til.

Mikið verk er þó óunnið.

Samtökin hafa náð virðulegum aldri en eru þó ung í anda.

Samtökin búa yfir mikilli reynslu og þekkingu og líka kjarki og krafti.

Þroskahjálp mun halda áfram að berjast fyrir mannréttindum fatlaðs fólks, jöfnum tækifærum og auknum lífsgæðum.

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt