Kjósum rétt(indi) fyrir fatlað fólk!
Birt þann:
22.11.2024

Birt þann:
22.11.2024

Nú styttist í alþingiskosningar og þá fáum við tækifæri til þess að kjósa stjórnmálaflokka í næstu ríkisstjórn.
Frambjóðendur kappkosta þessa dagana við að koma sínum áherslu- og stefnumálum á framfæri. Vandamálið við kosningaloforð stjórnmálaflokka er að þau eiga það til að gleymast, jafnvel daginn eftir að kosningar eru afstaðnar.
Málefni fatlaðs fólks hafa almennt lítið sem ekkert verið til umræðu, sem er mikið áhyggjuefni.
Að gefnu tilefni vill Þroskahjálp því koma eftirfarandi á framfæri:
Til að uppfylla þær skyldur sem stjórnvöld hafa undirgengist, m.a. með fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þurfa stjórnvöld og þeir sem kosnir eru til forystu að axla ábyrgð. Grundvallarforsenda samningsins er að fötlun verður til í samspili skerðinga og hindrana í samfélagi sem ekki gerir ráð fyrir fjölbreyttum þörfum. Verkefnið er því að breyta samfélaginu svo allir fái tækifæri til þátttöku á eigin forsendum en ekki að breyta fötluðu fólki til að passa inn í samfélagið – eða skilja það út undan. Allt fatlað fólk á að hafa tækifæri til jafns við aðra til þess að lifa sjálfstæðu lífi, búa við mannsæmandi lífskjör, hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og vinnumarkaði, eiga möguleika á að búa á eigin heimili og njóta einkalífs og fjölskyldulífs til jafns við aðra.
Að lokum viljum við vekja athygli á því að á fulltrúafundi Landssamtakanna Þroskahjálpar sem haldinn var 19. okt. sl. sendi fundurinn frá sér eftirfarandi ályktanir. Má lesa nánar um þessar ályktanir hér.
Samtökin hvetja frambjóðendur til þess að láta sig málefni fatlaðs fólks varða.
Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.
Þessi grein birtis fyrst á visir.is

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og verkefnastjóri í málefnum barna hjá Þroskahjálp skrifa um skóla án aðgreiningar: Ef við samþykkjum mannréttindi fatlaðs fólks í orði, en höfnum þeim í framkvæmd þegar á reynir, þá er hætt við að réttindin verði innantóm.

Í umræðunni um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er umræðan um kostnað og hver á að borga ráðandi. En spurningin ætti auðvitað frekar að vera: Hvers vegna hefur fatlað fólk þurft að bíða svona lengi eftir því að njóta sömu réttinda og aðrir?