Í gær miðvikudag var fyrsta æfing á sviðinu í Ráðhúsinu í Cork.
Í gær miðvikudag var fyrsta æfing á sviðinu í Ráðhúsinu í Cork. Þar söng Tara Þöll með útsetningu fyrir sinfoníuhljómsveit á keppnislaginu og gekk æfingin mjög vel.
Í dag verður loka æfing á sviði s.k. Dress rehersal og keppnin sjálf er í kvöld. Þar sem 13 lönd eiga sinn fulltrúa í keppninni og flytja lög sín fyrir dómnefnd.
Forseti Írlands verður viðstaddur keppnina sem er öll hin veglegasta. Hægt er að horfa á keppnina á netinu og hefst keppnin klukkan 18:30 á íslenskum tíma.
Slóðirnar eru: www.corkcommunitytv.ie or http://www.corkcity.ie/services/corporateandexternalaffairs/arts/communityarts/artsanddisabilitynetworkcork/
Á facebook er hópurinn með pistla og vídjóinnslög um ferðalagið, æfingar og keppnina sjálfa. Fréttaritarar Íslands í Cork eru Ólafur Snævar Aðalsteinsson og Gunnar Þorkell Þorgrímsson, en þeir taka jafnframt þátt í smiðjum og ráðstefnu á dagskrá hátíðarinnar.
Vinasíðan á facebook er Ísland-Eurosong Okkar fulltrúar.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
