Landssamtökin Þroskahjálp standa að ráðstefnu með þessar yfirskrift þriðjudaginn 14. apríl nk. að Grand hótel Reykjavík. Raðstefnunni er ætlað að benda á fjölbreyttar leiðir við uppbyggingu og rekstur húsnæðis ætluðu fötluðu fólki.
Hvernig þak yfir höfuðið ?
Landssamtökin Þroskahjálp standa að ráðstefnu með þessari yfirskrift þriðjudaginn 14. apríl nk. að Grand hótel Reykjavík.
Raðstefnunni er ætlað að benda á fjölbreyttar leiðir við uppbyggingu og rekstur húsnæðis ætluðu fötluðu fólki.
Á ráðstefnunni verður m.a. skoðuð ákvæði í lögum og reglugerðum hvað þetta varðar. Fatlað fólk og foreldrar fatlaðra barna segja frá sínum óskum og áætlunum. Skoðað verður hvort íbúa- og foreldrarekin þjónusta getur átt framtíð fyrir sér hér á landi og litið verður til reynslu Svía í þeim efnum. Fatlað fólk segir frá húsnæðisaðstæðum sínum auk þess sem leitað verður svara hjá opinberum yfirvöldum um hvort gert sé ráð fyrir fötluðu fólki í áætlunum þeirra á lána- og leigumarkaði.
Vinsamlegast takið daginn frá.
Nánari dagskrá síðar .
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
