Hvað gerist þegar fólk nær 18 ára aldri?
Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við réttindavakt velferðaráðuneytisins standa fyrir fræðslukvöldum um þær breytingar sem verða í lífi fatlaðs fólks við það að komast á fullorðinsár. Fyrstu tvö kvöldin verða nú í maímánuði og verður þar fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á réttarstöðu fólks við 18 ára aldur . Í september og október eru síðan ráðgerð þrjú fræðslukvöld til viðbótar um nám að loknum framhaldsskóla, atvinnumál og að flytja að heiman.
Birt þann:
04.05.2016



