Landssamtökin Þroskahjálp og Geðhjálp sendu í dag, 21. september, frá sér eftirfarandi bréf:
Til forsætisráðherra, formanns velferðarnefndar og þingflokksformanna.
Þann 8. júní 2022 skilaði nefnd á vegum forsætisráðuneytisins, sem falið var að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda, skýrslu sinni.
Þar kom m.a. þetta fram:
• Nefndin leggur til að rannsóknin fari fram samkvæmt fyrirmælum laga nr. 68/2011, um rannsóknarnefndir.
Slíkt fyrirkomulag gefi rannsóknarnefnd sjálfstæði, styrkar rannsóknarheimildir og sé einnig í samræmi við þann vilja Alþingis að almenn lög gildi almennt um slíkar rannsóknir.
• Þá er lagt til að rannsóknartímabilið verði annars vegar frá 1970 - 2011 og hins vegar frá 2011 og til dagsins í dag.
• Nauðsynlegt er að fatlað fólk með þroskahömlun og fólk með geðrænan vanda sé á meðal nefndarmanna.
• Lögð er þung áhersla á að gæta þess að fólk með þroskahömlun og fólk með geðrænan vanda fái fullnægjandi aðstoð við að koma málum sínum á framfæri við nefndina og fylgja þeim eftir.
• Að rannsóknin byggi á jafnræði hvað varðar afmörkun og umfang rannsóknar.
• Að rannsóknin byggi á gagnsæi, bæði hvað varðar verklag og niðurstöður.
• Loks eru settar fram mögulegar rannsóknarspurningar sem leitað yrði svara við.
Velferðarnefnd þingsins fékk málið strax í kjölfarið og var ætlað að skila þingsályktunartillögu um framkvæmd rannsóknarinnar.
Nú eru liðnir tæpir 16 mánuðir og ekkert bólar á þessari þingsályktun.
Landssamtökin Þroskahjálp og Geðhjálp óska svara um hvað tefji þessa vinnu og hvers vegna málinu er ekki gefin sú athygli af hálfu ráðuneytisins og þingsins sem það á skilið.
Hér er um að ræða fólk sem samfélagið brást á löngum köflum í lífi þess og vísbendingar hafa komið fram að alvarleg mannréttindabrot hafi verið framin gagnvart því.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
