Þroskahjálp merki
EN

Húrra fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra!

Grein sem birtist á Vísi.is 20. mars í tilefni þess að Inga Sæland lagði fram frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Birt þann:

20.03.2025

Húrra fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra!

Við hjá Þroskahjálp höfum fylgst glöð með langþráðri umræðu á Alþingi um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra, Ingu Sæland, um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það gleður okkur hversu afdráttarlaust ráðherrann styður sjálfsögð réttindi fatlaðs fólks og hversu skilmerkilega hann bendir á að fatlað fólk er ekki að biðja um mikið, einungis að njóta sömu réttinda og allir aðrir.

Markmið samningins er einfaldlega að tryggja að fatlað fólk njóti sömu mannréttinda og allir aðrir.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gerir kröfu á ríki sem hafa fullgilt og lögfest samninginn. Líkt og félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, hefur ítrekað bent á er krafan langt frá því að vera ósanngjörn eða óraunhæf. Auðvitað ætti þetta bara að vera sjálfsagt mál. Markmið samningsins er einfaldlega að tryggja að fatlað fólk njóti sömu mannréttinda og allir aðrir. Og við tökum undir þá spurningu sem ráðherra lagði ítrekað fram þegar hann mælti fyrir frumvarpinu: Hver getur verið á móti því?

Stjórnvöld bera ábyrgð á að fjarlægja hindranir í samfélaginu.

Við tökum einnig undir með félags- og húsnæðismálaráðherra og öðrum þingmönnum sem stigið hafa í pontu Alþingis og krafist þess að krónur og aurar verði ekki lengur meginstefið í umræðu um mannréttindi fatlaðs fólks. Fötlun er hluti af mannlegum margbreytileika, eins og fram hefur komið í umræðu um frumvarpið á Alþingi. Stærsta hindrunin í lífi fatlaðs fólks er samfélag sem tekur ekki mið af fjölbreyttum þörfum, og býður ekki upp á jöfn tækifæri. Það kostar peninga að reka samfélag og það kostar kannski líka peninga að leiðrétta þá kerfisvillu sem varð til þegar þarfir, geta og hæfileikar fatlaðs fólks voru jaðarsettir eða útilokaðir. En, það eru stjórnvöld sem bera þá ábyrgð. Það er ósanngjarnt og ólíðandi að velta fjárhagslegri ábyrgð á slíku klúðri yfir á fatlað fólk.

Við fögnum þeirri umræðu sem farið hefur fram á Alþingi um málefni fatlaðs fólks í umræðu um frumvarp Ingu Sæland, og við hvetjum Alþingi til þess að samþykkja frumvarpið og lögfesta samninginn með hraði.

Húrra fyrir félags- og húsnæðismálaráðherra og frumvarpinu um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Greinin birtist fyrst á vísi.is.

Smelltu hér til að lesa greinina á vísi.is

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt