Þroskahjálp merki
EN

Hugmyndir, tillögur og ábendingar frá stefnumótunarfundi Landssamtakanna Þroskahjálpar

Landssamtökin Þroskahjálp héldu stefnumótunarfund 12. mars sl. Þátttaka á fundinum var mjög góð og umræður þar líflegar og skemmtilegar. Fjölmargar góðar og gagnlegar hugmyndir, tillögur og ábendingar komu fram á fundinum sem stjórn og skrifstofa samtakanna mun styðjast við, við mótun stefnunnar og rekstur samtakanna og til leiðbeiningar til að áherslur og stefna verði í sem bestu samræmi við skoðanir og vilja þeirra sem þau vinna fyrir.

Birt þann:

05.04.2016

Hugmyndir, tillögur og ábendingar frá stefnumótunarfundi Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Landssamtökin Þroskahjálp héldu stefnumótunarfund 12. mars sl. Þátttaka á fundinum var mjög góð og umræður þar líflegar og skemmtilegar. Fjölmargar góðar og gagnlegar hugmyndir, tillögur og ábendingar komu fram á fundinum sem stjórn og skrifstofa samtakanna mun styðjast við, við mótun stefnunnar og rekstur samtakanna og til leiðbeiningar til að áherslur og stefna verði í sem bestu samræmi við skoðanir og vilja þeirra sem þau vinna fyrir.

Á fundinum var fjallað um eftirfarandi umræðuefni í fjórum hópum:

  • Hvað gera Landssamtökin Þroskahjálp vel?
  • Hvað geta Landssamtökin Þroskahjálp gert betur?
  • Hvar viljum við vera þegar samtökin verða sextug árið 2026?
  • Hvernig getum við best tryggt að raddir fólks með þroskahömlun heyrist vel og hafi örugglega áhrif á stefnu og áherslur samtakanna?
  • Hvernig getum við eflt starfsemi aðildarfélaganna þannig að þau hafi áhrif í nærumhverfi sínu?

Þátttakendur svöruðu margir einnig þessum spurningum varðandi ímynd samtakanna hjá fötluðu fólki og almenningi:

  • Hvernig er ímynd samtakanna hjá fötluðu fólki?
  • Hvernig viljum við að ímynd samtakanna verði hjá fötluðu fólki og hvað getum við gert til að stuðla að því.
  • Hvernig er ímynd samtakanna hjá almenningi?
  • Hvernig viljum við að ímynd samtakanna verði hjá almenningi og hvernig getum við stuðlað að því?

Í skjalinu sem sækja má hér að neðan, er samantekt með þeim hugmyndum, tillögum og ábendingum sem fram komu í umræðum hópanna fjögurra:

Tvö verkefni sem byggjast á umræðunum á fundinum eru þegar í undirbúningi, þ.e. að auka sýnileika samtakanna með því að láta gera nauðsynlegar breytingar á vefsíðu þeirra til að efni þar verði vel aðgengilegt í snjallsímum og í spjaldtölvum. Þá er í undirbúningi að auka virkni, sýnileika og áhrif samtakanna og aðildarfélaganna á landsbyggðinni með því að efna næsta haust til funda með hlutaðeigandi starfsfólki þjónustusvæða/sveitarfélaga og sveitarstjórnarfólki víðs vegar um land til að ræða stöðu mála og helstu viðfangsefni varðandi þjónustu við fatlaða á hverjum stað. Á þeim fundum verður einnig rætt hvernig sveitarfélög geti best staðið að samráði við fatlað fólk varðandi þjónustuna og framkvæmd hennar. Samtökin munu leggja mikla áherslu á að fatlað fólk og aðstandendur, ekki síst fatlaðra barna, taki virkan þátt í þessum fundum.

Landssamtökin Þroskahjálp þakka öllum þeim sem þátt tóku í stefnumótunarfundinum kærlega fyrir þátttökuna og þeirra mikilvæga framlag til að gera samtökin okkar sem öflugust við að berjast fyrir mannréttindum og hagsmunum fatlaðs fólks.

Niðurstöður samráðsfundarins má lesa hér

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt