Hjálpartækjaverkstæði á Egilsstöðum og Ísafirði.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa gert samninga við verkstæði á Egilsstöðum og á Ísafirði um viðgerðarþjónustu hjálpartækja fyrir notendur sem hafa fengið hjálpartæki frá hjálpartækjamiðstöð SÍ. Fyrir eru sambærilegir samningar við verkstæði á Akureyri og í Vestmannaeyjum.
Birt þann:
11.05.2016



