Þroskahjálp merki
EN

Hasta la Vista - Kvikmyndasýning

Kvikmyndasýning - Umræður - Tími: 30.apríl kl. 16 – 19 (4-7) Frítt inn á meðan að húsrúm leyfir. Pláss er fyrir 5 hjólastóla í salnum, en mögulegt er að koma fleirum fyrir á gangi þegar fólk er sest. Endilega sendið póst á netfangið listanlandamaera@gmail.com eða hringið í síma 691-8756 og látið okkur vita svo að við getum gert ráðstafanir!

Birt þann:

30.04.2013

Hasta la Vista - Kvikmyndasýning

Kvikmyndasýning - Umræður - Tími: 30.apríl kl. 16 – 19 (4-7) Frítt inn á meðan að húsrúm leyfir. Pláss er fyrir 5 hjólastóla í salnum, en mögulegt er að koma fleirum fyrir á gangi þegar fólk er sest. Endilega sendið póst á netfangið listanlandamaera@gmail.com eða hringið í síma 691-8756 og látið okkur vita svo að við getum gert ráðstafanir!

Tími: 30.apríl kl. 16 – 19 (4-7)
Háskólabíó, Hagatorgi, 107 Reykjavík

Frítt inn á meðan að húsrúm leyfir. Pláss er fyrir 5 hjólastóla í salnum, en mögulegt er að koma fleirum fyrir á gangi þegar fólk er sest. Endilega sendið póst á netfangið listanlandamaera@gmail.com eða hringið í síma 691-8756 og látið okkur vita svo að við getum gert ráðstafanir!

Hasta la Vista (Belgía, 2011, Geoffrey Enthoven)
Hasta la Vista fjallar um þrjá unga menn, hver með sína fötlun, sem eins og svo margir ungir menn elska vín og konur. Gegn vilja foreldra sinna langar þá að fara í ferðalag frá Belgíu til Spánar til að sinna þessum áhugamálum. Þeir ákveða að fá fyrrum fangann Claude sér til halds trausts sem bílstjóra og aðstoðarmanneskju. Í skjóli nætur laumast þeir að heiman og leggja upp í ferðalag út í hinn stóra heim, í leit að ævintýrum utan við gömlu hjólförin.

Kvikmyndin er byggð á heimildamyndinni For one night only þar sem fylgst var með ferðalagi Asta Philpot til Spánar á vændishús með aðgengi fyrir fatlaða. Myndin vakti mikil viðbrögð á Bretlandi eftir að hún var sýnd þar og spurningar um líkamlegar þarfir fatlaðra sem þeir geta ekki svalað sjálfir komst í umræðuna. Fyrir utan þá lykilspurningu tekur Hasta la Vista einnig á öðrum lykilþáttum varðandi sjálfstæði, þroska og möguleika ungra manna með fötlun að vera þeir sjálfir fyrir sig sjálfa.

Myndin er sýnd sem hluti af List án Landamæra að frumkvæði Gunnars Tómasar Kristóferssonar kvikmyndafræðings.

Að lokinni sýningu myndarinnar verða umræður í umsjá Ólafs Snævars Aðalsteinssonar diplómanema við HÍ, Emblu Ágústsdóttur hjá NPA miðstöðinni og Kristínar Björnsdóttur lektors við HÍ.

Hér má sjá sýnishorn úr myndinni: http://www.youtube.com/watch?v=jS0St2NMk1Q
Og umfjöllun um myndina: http://www.starkinsider.com/2012/03/film-review-come-as-you-are-hasta-la-vista.htm

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt