Þroskahjálp merki
EN

Handbók um notendasamráð

Landssamtökin Þroskahjálp tóku að sér gerð handbókar fyrir sveitarfélög um starfsemi notendaráða.

Birt þann:

12.08.2021

Handbók um notendasamráð

Landssamtökin Þroskahjálp tóku að sér gerð handbókar fyrir sveitarfélög um starfsemi notendaráða.

Markmið handbókarinnar er að tryggja sveitarfélögum fræðslu um skyldur sínar er varðar fatlað fólk og mikilvægi þess að allir séu raunverulegir og virkir þátttakendur. Í handbókinni er meðal annars komið inn á nauðsyn þess að öllum þátttakendum í notendaráðum sé tryggður viðeigandi stuðningur og aðlögun sem mætir þörfum þeirra til þess að þeir geti komið skoðunum sínum á framfæri, deilt reynslu sinni og veitt stjórnvöldum viðeigandi aðhald.

Handbókinni er ætlað að tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks í notendaráðum varðandi málefni sveitarfélaganna sem hafa bein áhrif á lífsgæði og sjálfstæði þess. Efnið er unnið með styrk frá félagsmálaráðuneytinu og í nánu samráði við fatlað fólk og byggir á heimildum um samráð við fatlað fólk.

Smelltu hér til að lesa handbókina.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt