Þroskahjálp merki
EN

Hækkun frítekjumarks öryrkja loks samþykkt

Landssamtökin Þroskahjálp fagnar hækkun frítekjumarks öryrkja sem var samþykkt í gær

Birt þann:

15.12.2022

Hækkun frítekjumarks öryrkja loks samþykkt

Í gær var frumvarp Guðmundar Inga, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um hækkun frítekjumarks örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega samþykkt á Alþingi. Þessi breyting felur í sér að frítekjumarkið nánast tvöfaldast og fer úr 110.000 krónum á mánuði upp í 200.000 krónur á mánuði.

Landssamtökin Þroskahjálp fagna þessum áfanga, en samtökin hafa lengi bent á nauðsyn þess að ráðast í þessar hækkanir. Þetta er fyrsta hækkunin á frítekjumarkinu sem hefur átt sér stað frá árinu 2009.

Um hækkunina segir Guðmundur Ingi, félags- og vinnumarkaðsráðherra:

„Hækkunin markar vatnaskil. Þetta er auk þess gríðarlega mikilvægur áfangi í að endurskoða í heild sinni örorkulífeyriskerfið á Íslandi. Því kerfi vil ég og ætla að ná að umbylta,“

Við tökum undir þessi orð ráðherra um að nauðsynlegt sé að endurskoða og umbylta örorkulífeyriskerfinu á Íslandi. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við ráðherra um þessi mál og munum halda áfram að beita okkur fyrir því að örorkulífeyriskerfið taki betur mið af því fólki sem það á að þjónusta.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt