Þroskahjálp merki
EN

Fyrirspurn til sóttvarnarlæknis vegna bólusetninga fólks með Downs heilkenni

Rannsóknir hafa sýnt fram á að dánartíðni meðal fólks með Downs heilkenni er 10 sinnum hærri en almennt gengur og gerist. Landssamtökin Þroskahjálp höfðu vegna þess samband við sóttvarnarlækni til þess að hvetja til þess að hugað verði að því að bólusetja fólk með Downs heilkenni sem fyrst. Þýsk stjórnvöld hafa til að mynda sett fólk með Downs heilkenni í flokk 2 varðandi forgang í bólusetningar.

Birt þann:

28.01.2021

Fyrirspurn til sóttvarnarlæknis vegna bólusetninga fólks með Downs heilkenni

Ljósmynd: Gustavo Fring, Pexels

Rannsóknir hafa sýnt fram á að dánartíðni meðal fólks með Downs heilkenni er 10 sinnum hærri en almennt gengur og gerist. (1)

Landssamtökin Þroskahjálp höfðu vegna þess samband við sóttvarnarlækni til þess að hvetja til þess að hugað verði að því að bólusetja fólk með Downs heilkenni sem fyrst. Þýsk stjórnvöld hafa til að mynda sett fólk með Downs heilkenni í flokk 2 varðandi forgang í bólusetningar. (2)

Hér á Íslandi er þegar hafin bólusetning á fötluðu fólki sem býr á sambýlum, íbúðarkjörnum eða er með NPA samninga. Einhverjir einstaklingar með Downs heilkenni hafa fengið bólusetningu, en það hefur virst handahófskennt.

Mikilvægt er að vanda vel valið þegar ákveðið er hverjir fá bólusetningu fyrst innan þessa hóps, enda er fatlað fólk ekki einsleitur hópur. Sumir eru jafnvel mjög hraustir og ekki í meiri áhættu en aðrir sýkist þeir af COVID-19, þrátt fyrir að hafa mikla stuðningsþörf. Aðrir eru mjög viðkvæmir vegna undirliggjandi sjúkdóma og er fólk með Downs heilkenni sérstaklega viðkvæmt. Vitaskuld er fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir að mörgu leyti í meiri áhættu en gengur og gerist vegna jaðarsetningar, samfélagslegrar stöðu og þjónustuþarfa.

Sóttvarnarlæknir sagði í svari við erindi Þroskahjálpar að einstaklingar með Downs heilkenni muni ekki vera færðir innan þess forgangshóp sem þeir eru í. Á sama tíma og Landssamtökin Þroskahjálp sýna því skilning að stjórnvöld eru í erfiðri stöðu að forgangsraða bóluefni þá er þessi niðurstaða samtökunum vonbrigði þar sem ljóst er að fólk með Downs heilkenni er sérlega viðkvæmt fyrir COVID veirunni og er það byggt á vísindalegum rannsóknum.

Heimildir

  1. https://www.sciencemag.org/news/2020/12/covid-19-10-times-deadlier-people-down-syndrome-raising-calls-early-vaccination og https://www.t21rs.org/results-from-covid-19-and-down-syndrome-survey/
  2. https://www.dw.com/en/covid-german-regulations-on-who-gets-vaccine-first/a-55987647.
Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt