Þroskahjálp merki
EN

Fundur Landssamtakanna Þroskahjálpar með félags- og jafnréttismálaráðherra.

Formaður og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar funduðu í gær með Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra. Á fundinum var farið yfir ýmis mikilvæg mál sem varða mannréttindi og hagsmuni fatlaðs fólks og lög, reglur alþjóðlega samninga, stjórnsýslu, þjónustu og eftirlit á þvi sviði.

Birt þann:

02.03.2017

Fundur Landssamtakanna Þroskahjálpar með félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fundur Landssamtakanna Þroskahjálpar með félags- og jafnréttismálaráðherra.

Formaður og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar funduðu í gær með Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra. Á fundinum var farið yfir ýmis mikilvæg mál sem varða mannréttindi og hagsmuni fatlaðs fólks og lög, reglur alþjóðlega samninga, stjórnsýslu, þjónustu og eftirlit á þvi sviði.

Á fundinum tóku fulltrúar Þroskahjálpar m.a. upp eftirfarandi mál og gerðu ráðherra grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi þau:

  • Skýrslu vistheimilanefndar um Kópavogshælið.
  • Atriði sem líta þarf sérstaklega til varðandi sanngirnisbætur til fatlaðs fólks sem dvaldist á Kópavogshæli og fleiri stöðum.
  • Nauðsynlegar úrbætur á reglum, stjórnsýslu og eftirliti m.a. í ljósi þess sem fram kemur í skýrslu vistheimilanefndar og tillagna nefndarinnar um úrbætur.
  • Viðbrögð stjórnvalda við dómi Hæstaréttar í máli Salbjargar Óskar Atladóttur gegn íslenska ríkinu.
  • Skyldu stjórnvalda til samráðs við fatlað fólk samkvæmt lögum og samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
  • Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar þjónustuaþarfir.
  • Notendastýrða persónulega aðstoð (NPA).
  • Lögfestingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
  • Fullgildingu valkvæðs viðauka við samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks skv. þingsályktun þar að lútandi.
  • Atvinnumál og ónóg atvinnutækifæri fatlaðs fólks almennt og m.t.t. starfsgetumats.
  • Breytingar á lögum um almannatryggingar og bókun Þroskahjálpar við frumvarp um þær.
  • Húsnæðismál fatlaðs fólks.
  • Eftirlit með framkvæmd þjónustu og stjórnsýslu stofnana ríkis og sveitarfélaga og nauðsynlegar úrbætur á því.
  • Þörf fullorðins fatlaðs fólks fyrir sambærilega þjónustu og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins veitir.
  • Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.
  • Möguleika félagasamtaka til fjármögnunar á starfsemi sinni.

Fundurinn var gagnlegur og vill Þroskahjálp þakka félags- og jafnréttismálaráðherra fyrir hann. Samtökin óska ráðherra velfarnaðar í þeim mikilvægu störfum sem honum hefur verið treyst fyrir, ekki síst við að tryggja og hafa eftirlit með að fatlað fólk og aðrir fái í framkvæmd þau mannréttindi sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að veita öllum, m.a. með því að gera nauðsynlegar breytingar á lögum og reglum, í stjórnkerfi, stjórnsýslu og opinberri þjónustu.

Á eftirfarandi hlekkjum má nálgast minnisblöð með áhersluatriðum sem Þroskahjálp lagði fram og fór yfir á fundinum með félags- og jafnréttismálaráðherra:

Nokkur áhersluatriði Þroskahjálpar: lesa

Aðgerðir varðandi úrbótatillögur vistheimilanefndar: lesa

Nokkur mikilvæga atriði varðandi sanngirnisbætur: lesa

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt