Þroskahjálp merki
EN

Fundað með félagsmálaráðherra

Birt þann:

19.04.2023

Fundað með félagsmálaráðherra

Við hjá Landssamtökunum Þroskahjálp áttum góðan fund með Guðmundi Inga félags- og vinnumarkaðsráðherra í gær. Unnur Helga formaður Þroskahjálpar og Anna Lára verkefnastjóri ræddu við ráðherra ýmis áherslumál samtakanna, m.a. mikilvægi þess að hækka grunn endurhæfingar- og örorkulífeyrisgreiðslur. Margt fatlað fólk fær einungis greiðslur frá TR og hefur ekki tækifæri til að bæta kjör sín, og á því allt undir því að greiðslur frá hinu opinbera séu nægar til að láta enda ná saman.

Landssamtökin Þroskahjálp beita sér fyrir réttindum og hagsmunum fatlaðs fólks með afar fjölbreyttum hætti, og er þétt og innihaldsríkt samtal við æðstu ráðamenn þjóðarinnar ein leiðin til þess. Þroskahjálp mun því halda þessu samtali áfram og halda kröfunni um hækkun grunn endurhæfingar- og örorkulífeyrisgreiðslna á lofti í hvívetna.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt