Fulltrúafundur samtakanna verður haldinn í Varmahlíð 17. - 19. október nk. Yfirskrift ráðstefnunnar sem haldin er á fundinum er "Maður er manns gaman" - félagsleg þátttaka fatlaðs fólks.
Ráðstefnan er öllum opin. Á fulltrúafundinum sjálfum verður fjallað um starf, stefnu og hlutverk Landssamtakanna Þroskahjálpar. Við viljum einnig ræða um hvernig samtökin geti sem best stutt við starfsemina í nærsamfélaginu og haft áhrif á þjónustu og réttindabaráttu við nýjar aðstæður.
Öllum er velkomið að taka þátt í dagskrá og umræðum fulltrúafundins en eingöngu tilnefndir fulltrúar aðildarfélaganna hafa atkvæðisrétt komi til atkvæðagreiðslu á fundinum.
Samtökin hafa leitað tilboða í gistingu í tvær nætur með fullu fæði frá föstudagssíðdegi til sunnudgsmorguns og akstri fram og tilbaka frá Reykjavík. Verð fyrir slíkan pakka er á bilinu 40-50 þús. kr. eftir því hvort gist er í eins eða tveggja manna herbergjum eða sérstökum húsum á svæðinu.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
