ATHUGIÐ BREYTTA STAÐSETNINGU:
Fundurinn verður haldinn í Reykjavík, á Hilton Nordica hótelinu.
Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar fer fram þann 29. október á Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík. Þar hittast fulltrúar aðildarfélaga Þroskahjálpar og stilla saman strengi, fara yfir starfsárið og fleira. Á fulltrúafundinum verður m.a. stefnumótunarvinna og nýtt merki Landsamtakanna Þroskahjálpar kynnt.
Eftir hádegi verður málþing um stafrænt aðgengi fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir þar sem spennandi fyrirlestrar verða.
Frekari dagskrá verður tilkynnt síðar.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
