FFA, Fræðsla fyrir fatlað og aðstandendur í samvinnu við CP félagið boðar til fræðslufundar þriðjudaginn 17. september kl. 20:00 – 21:30 að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Skekkjur og aflaganir í bol og útlimum hafa fylgt einstaklingum með fatlanir , sérstaklega þeim sem eru með mikla hreyfihömlun.
Líkamstöðustjórnun er hugmyndafræði um heildræna nálgun í þjónustu við hreyfihamlað fólk, kom fram í Bretlandi á áttunda áratug síðustu aldar, og er viðbót við hefðbundna læknisfræðilega meðferð einstaklinganna. Stöðustjórnun er lykilatriði í ýmsum heilsu- og félagstengdum lífsgæðum og getur falið í sér margskonar aðgerðir.
Líkamsstöðustjórnun er í raun einstaklingsmiðaður lífstíll, þar sem allt umhverfið er virkjað 24 klst á sólarhring, sjö daga vikunnar allt árið um kring og þannig stuðlað að því að fyrirbyggja skekkjur og aflaganir.
Fjallað verður um hugmyndafræði líkamstöðustjórnunar, lífaflfræði legustellinga, hvernig skekkjur og aflaganir á bol og útlimum þróast, ásamt því hvernig megi fyrirbyggja þær.
Fyrirlesari er Atli Ágústsson, sjúkraþjálfari og heilbrigðisverkfræðingurhjá Endurhæfingu Þekkingarsetri. Atli er með mikla reynslu af meðferð einstaklinga með hreyfihamlanir og slæmar aflaganir á útlimum og bol. Atli er í setráðgjafar teymi hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslans.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis en
SKRÁNING Á asta@throskahjalp.is
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
