Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar fengu á nýyfirstöðnu landsþingi aðild að Landssamtökunum Þroskahjálp.
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar var stofnað árið 2000 og er hlutverk þess að vera stuðningsaðili starfs Tónstofu Valgerðar. Í Tónstofunni, sem stofnuð var árið 1986, fer fram tónlistarkennsla fyrir nemendur sem vegna fatlana og eða sjúkdóma þurfa sérstakan stuðning. Félagið telur að aðild að Landssamtökunum Þroskahjálp geti aukið þann slagkraft sem þarf í baráttu Tónstofunnar fyrir jafnrétti til handa nemendahópnum sem glímir við mismunum bæði hjá ríki og borg og stendur því höllum fæti.
Hlutverk Tónstofunnar felst m.a. í því að standa vörð um réttindi fólks með fötlun til að nýta og þróa hæfileika sína og stuðla að virkri þátttöku þeirra í menningarlífi og listum. Við listiðkun hjá Tónstofunni eflist skapandi hugur og hönd, þekking á menningu og og listum, félagsfærni, læsi á umhverfi, hegðun, aðstæður og tilfinningar, þrautsegja, sjálfsstjórn, sjálfstraust og jákvæð sjálfsmynd svo fátt eitt sé nefnt.
Við hjá Landssamtökunum Þroskahjálp hlökkum til að starfa með Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar!
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
