Nú hafa Sjúkratryggingum Íslands verið veittar auknar heimildir til styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn með tvö heimili. Þroskahjálp fagna þessum skrefum, en samtökin hafa lengi bent á misréttið sem í þessu felst.
Á vef Stjórnarráðsins segir að markmiðið sé að gera heimilin jafnsett þannig að börnin eigi hjálpartækin vís á báðum stöðum. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.
Áður tóku styrkirnir til kaupa á sjúkrarúmum, dýnum, stuðningsbúnaði og hjálpartækjum tengdum salernisferðum. Nú er einnig heimilt að veita styrki til kaupa á sérstökum vinnustólum og sessum. Þann 1. júlí sl. hækkuðu fjárhæðir styrkja vegna kaupa á hjálpartækjum umtalsvert þegar styrkirnir voru færðir upp til verðlags en það hafði ekki verið gert frá árinu 2008.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
