Þroskahjálp merki
EN

Fjölmennt tekur við Miðstöð um auðlesið mál

Fjölmennt hefur tekið við rekstri Miðstöðvar um auðlesið mál. Miðstöðin var áður hjá Þroskahjálp. Snorri Rafn Hallsson er nýr starfsmaður hjá Miðstöðinni.

Birt þann:

22.05.2024

Fjölmennt tekur við Miðstöð um auðlesið mál

Fjölmennt hefur tekið að sér að sjá um rekstur Miðstöðvar um auðlesið mál.
Miðstöðin var áður staðsett hjá Landssamtökunum Þroskahjálp.

Vefsíðan er www.auðlesið.is

Hér er frétt Fjölmenntar:

Snorri Rafn Hallsson hefur verið ráðinn starfsmaður Miðstöðvar um auðlesið mál.

Snorri Rafn lauk meistaranámi í heimspeki frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 2016. Hann hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu–Rás 1, verið upptökustjóri og textasmiður.

Starfsemi miðstöðvarinnar er í mótun. Helstu verkefni hennar til að byrja með er vinna fyrir Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið við að einfalda texta lagagreina sem varða fatlað fólk.

Mikilvægt verkefni stöðvarinnar er að bregðast við málefnum líðandi stundar og að fólk fái auðlesnar og hlutlausar upplýsingar um það sem er að gerast á hverjum tíma.

Í starfi miðstöðvarinnar er samráð við fatlað fólk mjög mikilvægt til að byggja á þekkingu þeirra sem nýta sér auðlesið mál og læra af þeirra reynslu. Skoða þarf hvernig fólki finnst best að taka á móti upplýsingum og skoða hvernig það notar netið, smáforrit og snjalltæki sér til aðstoðar í daglegu lífi.

Í framtíðinni mun verða hægt að leita til miðstöðvarinnar til að lesa yfir efni sem þegar hefur verið búið til af starfsfólki hjá hinum ýmsu stofnunum og sveitarfélögum, farið yfir efni, ráðgjöf veitt um framsetningu, texti lagfærður og veitt ráðgjöf um miðlun efnisins.

Við erum mjög spennt yfir þessum tímamótum og bjóðum Snorra Rafn velkominn til starfa.

Smelltu hér til að sjá frétt Fjölmenntar

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt