Þroskahjálp merki
EN

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar

Frumvarpið felur í sér að fullar örorkubætur einstaklinga með aldurstengda uppbót hækka lítilega, t.d. mun sá sem orðið hefur öryrki fyrir 25 ára aldur og býr með öðrum, fá kr. 270.423 á mánuði (fyrir skatt) og bætur sambærilegs einstaklings sem býr einn verða kr. 334.240 á mánuði. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessar breytingar verði afturvirkar frá 1. janúar sl.

Birt þann:

04.06.2019

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar

Frumvarp félagsmálaráðherra um breytingar á lögum varðandi örorkubætur.

Frumvarpið felur í sér að fullar örorkubætur einstaklinga með aldurstengda uppbót hækka lítilega, t.d. mun sá sem orðið hefur öryrki fyrir 25 ára aldur og býr með öðrum, fá kr. 270.423 á mánuði (fyrir skatt) og bætur sambærilegs einstaklings sem býr einn verða kr. 334.240 á mánuði. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessar breytingar verði afturvirkar frá 1. janúar sl.

Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að svonefnd krónu á móti krónu skerðing verði breytt þannig að skerðingarhlutfall verði lækkað úr 100% í 65%.

Landssamtökin Þroskahjálp telja að ef þessar breytingar ná fram að ganga sé um að ræða lítið skref í rétta átt. Fatlað fólk sem á vegna fötlunar sinnar og lítilla tækifæra á vinnumarkaði litla eða enga möguleika til að afla sér atvinnutekna verður eftir sem áður að draga fram lífið á sultarkjörum. Kjörum sem eru í engu samræmi við lífskjarasamningana svonefndu og verða greiðslur til um 70% öryrkja töluvert lægri en atvinnuleysisbætur sem enginn er of sæll af en flestir verða þó sem betur fer aðeins tímabundið að láta duga fyrir framfærslu sinni.

Landssamtökin Þroskahjálp skora á ríkisstjórnina og Alþingi að bæta nú þegar kjör fatlaðs fólks þannig að það eigi möguleika á mannsæmandi lífi og getið tekið virkan þátt í samfélaginu til jafns við aðra sem í landinu búa.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt