Þroskahjálp merki
EN

Fatlað fólk á Gaza. Hver mínúta skiptir máli.

Þroskahjálp krefst þess að íslensk stjórnvöld beiti sér af festu fyrir tafarlausri mannúðaraðstoð á Gaza sem tekur mið af þörfum og réttindum fatlaðs fólks.

Birt þann:

05.08.2025

Fatlað fólk á Gaza. Hver mínúta skiptir máli.

Nánast daglega berast fréttir af hungurdauða barna á Gaza.

Börn á Gaza – þar á meðal fötluð börn – eru í lífshættu.

Börn á Gaza búa við grímulaust ofbeldi, skort á læknisþjónustu, hreinu vatni, næringu og öryggi sem öll börn eiga að njóta. Fötluð börn eru sérstaklega berskjölduð, og fjölmörg börn eru að fatlast til frambúðar vegna ofbeldis og vannæringar.

Þroskahjálp krefst þess að íslensk stjórnvöld bregðist tafarlaust við.

Íslensk stjórnvöld eru með samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í löfestingarferli og lögfestu Barnasáttmálann fyrir tólf árum. Þessum mannréttindasáttmálum fylgir skylda til þess að vernda réttindi allra barna, ekki bara í orði heldur einnig í verki.

Þroskahjálp krefst þess að íslensk stjórnvöld setji börn, þar á meðal fötluð börn, í forgang og beiti sér af festu og alvöru á alþjóðavettvangi fyrir tafarlausri mannúðaraðstoð á Gaza sem tekur mið af þörfum og réttindum fatlaðs fólks.

Hver mínúta skiptir máli. Börn eiga rétt á vernd – alls staðar.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt