Þroskahjálp merki
EN

Dóra S. Bjarnason látin

Dóra S. Bjarnason, prófessor emerita í félagsfræði og fötlunarfræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, lést á heimili sínu 5. ágúst sl.

Birt þann:

11.08.2020

Dóra S. Bjarnason látin

Dóra S. Bjarnason, prófessor emerita í félagsfræði og fötlunarfræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, lést á heimili sínu 5. ágúst sl.

Dóra var sannkallaður brautryðjandi í að innleiða mannréttindi í þjónustu við fatlað fólk á Íslandi og aðstandendur þeirra bæði með rannsóknum sínum og í eigin lífi með Benedikt syni sínum. Árið 1985 kynnti Dóra til sögunnar hvernig staðið væri að því í Bandaríkjunum að efla tækifæri fatlaðs fólk til að stjórna eigin lífi og hafa áhrif í samfélaginu. Þessi umræða var gott innlegg í stofnun umræðuhópa fólks með þroskahömlun sem leiddu síðar til stofnunar Átaks félags fólks með þroskahömlun. Dóra stýrði menntamálanefnd Landssamtakanna Þroskahjálpar um árabil auk þess sem hún skrifaði fjölda greina um málefni fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra í Tímaritið Þroskahjálp og hélt fyrirlestra á málþingum og ráðstefnum sem samtökin stóðu að.

Árið 2002 fékk Dóra Múrbrjót samtakanna vegna einarðrar baráttu og rannsókna í þágu fólks með fötlun.

Framlag Dóru til mannréttindabaráttu fatlaðs fólks er ómetanlegt og þakka Landssamtökin Þroskahjálp henni innilega fyrir þá miklu einurð og þrautseigju sem hún sýndi í þeirri baráttu sem og farsælt samstarf og samvinnu um árabil.

Benedikt og öðrum ástvinum sendum við innilega samúðarkveðju.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt