Þroskahjálp merki
EN

Diplómanám í fötlunarfræði við HÍ

Fötlunarfræði skoðar líf og aðstæður fatlaðs fólks út frá félagslegum skilningi og mannréttindanálgun með áherslu á þætti sem skapa og viðhalda fötlun og hindra þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.

Birt þann:

26.11.2020

Diplómanám í fötlunarfræði við HÍ

Opið er fyrir umsóknir í diplómanám í fötlunarfræði til og með 30. nóvember 2020.

Fötlunarfræði skoðar líf og aðstæður fatlaðs fólks út frá félagslegum skilningi og mannréttindanálgun með áherslu á þætti sem skapa og viðhalda fötlun og hindra þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Námið er þverfaglegt og bæði kennarar og nemendur eru með fjölbreyttan bakgrunn. Sterk tengsl eru við innlendar og alþjóðlegar rannsóknir á sviði fötlunarfræði.

Margvísleg tækifæri eru að loknu námi.
Fötlunarfræði býður upp á fjarnám sem margir nemendur hafa nýtt sér með góðum árangri.

Frekari kynning á diplómanámi í fötlunarfræði er á Youtube: https://youtu.be/s9dYF5hyZQQ

Nánari upplýsingar veita Stefan C. Hardonk formaður námsbrautar (hardonk@hi.is) og Ásdís Magnúsdóttir verkefnastjóri á skrifstofu Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt