Þroskahjálp merki
EN

Desemberuppbót til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna

Foreldrar barna sem eru langveik eða alvarlega fötluð fái greidda desemberuppbót.

Birt þann:

10.12.2021

Desemberuppbót til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að foreldrar barna sem eru langveik eða alvarlega fötluð fái greidda desemberuppbót. Óskert desemberuppbót er 64.066 krónur.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Í reglugerðinni segir að foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem hefur fengið greiðslur í desember 2021, samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, eigi rétt á desemberuppbót.

Foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót.

Foreldri sem fengið hefur greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2021 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót í samræmi við þann tíma sem það hefur fengið greiðslur.

Desemberuppbótin nemur þó aldrei lægri fjárhæð en 16.016 krónum.

Tryggingastofnun annast greiðslu desemberuppbótar samkvæmt reglugerðinni.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt