Hér eru nýjar COVID reglur.
Þær gilda 12. nóvember til 22. desember.
Aðal-atriðin eru:
- Við eigum öll að nota grímu.
- Við eigum að hafa 1 metra bil á milli okkar.
- Það mega vera 50 manneskjur á sama stað.
Þarf ég að nota grímu?
Allt fólk eldra en 15 ára þarf að nota grímu.
Börn þurfa ekki grímu.
Hvenær þarf ég grímu?
Þú þarft grímu alls staðar þar sem margt fólk hittist.
Líka þegar þú ert mjög nálægt öðru fólki.
Þú þarft grímu þegar þú færð þjónustu eins og klippingu eða sjúkraþjálfun.
Þú þarft grímu þegar þú situr í leikhúsi og á tónleikum.
Líka þegar þú ferð út í búð eða á kaffihús og svoleiðis.
Má ég vera nálægt öðru fólki?
Þú þarft að hafa 1 metra á milli þín og annars fólks.
1 metri er jafn langt og ein kind.
Þú þarft grímu alls staðar þar sem margt fólk hittist.
Líka þegar þú ert mjög nálægt öðru fólki.
Má margt fólk vera á sama stað?
Það mega 50 manneskjur vera á sama stað.
Þá þarft þú að hafa 1 metra á milli þín og annars fólks.
Fólk þarf sérstakt leyfi til að halda stóran viðburð.
Til dæmis stóra tónleika eða árshátíð.
Þá þurfa allir gestir að taka COVID hrað-próf.
Við eigum öll að nota grímu.
Má ég fara út að borða og skemmta mér?
Já. Veitingastaðir og barir mega hafa opið til klukkan 22 um kvöld.
Allir gestir þurfa að skrá nafn sitt á blað.
Og við eigum öll að nota grímu.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
