Þroskahjálp merki
EN

Búseta fólks með þroskahömlun- Morgunfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Landssamtökin Þroskahjálp og Velferðarsvið Reykjavíkur bjóða til morgunfundar. Boðið er til morgunfundar með tveimur bandarískum sérfræðingum um málefni fatlaðs fólks. Báðir hafa starfað í áratugi á þessum vettvangi, ekki síst í þróun búsetu og eftirliti með gæðum hennar. Þeir hafa m.a. unnið í anda dr. Wolf Wolfensbergers (1934-2011) fræðimanns og áhrifamikils frumkvöðuls í málefnum fatlaðs fólks.

Birt þann:

06.09.2016

Búseta fólks með þroskahömlun- Morgunfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Landssamtökin Þroskahjálp og Velferðarsvið Reykjavíkur bjóða til morgunfundar. Boðið er til morgunfundar með tveimur bandarískum sérfræðingum um málefni fatlaðs fólks. Báðir hafa starfað í áratugi á þessum vettvangi, ekki síst í þróun búsetu og eftirliti með gæðum hennar. Þeir hafa m.a. unnið í anda dr. Wolf Wolfensbergers (1934-2011) fræðimanns og áhrifamikils frumkvöðuls í málefnum fatlaðs fólks.

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Landssamtökin Þroskahjálp og Velferðarsvið Reykjavíkur

bjóða til morgunfundar

Búseta fólks með þroskahömlun- Morgunfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur

8. september 2016, Kl. 9.00 – 10.30

Tveir fyrirlestrar um búsetu fólks með þroskahömlun í USA:

  • Christopher Liuzzo: Frá stofnun til einstaklingsbundinnar búsetu
  • Dr. Guy Caruso: Eftirlit og mat til að tryggja gæði
  • Umræður og fyrirspurnir

Boðið er til morgunfundar með tveimur bandarískum sérfræðingum um málefni fatlaðs fólks. Báðir hafa starfað í áratugi á þessum vettvangi, ekki síst í þróun búsetu og eftirliti með gæðum hennar. Þeir hafa m.a. unnið í anda dr. Wolf Wolfensbergers (1934-2011)fræðimanns og áhrifamikils frumkvöðuls í málefnum fatlaðs fólks.

Christopher Liuzzo var aðstoðarframkvæmdastjóri í þjónustukerfi fyrir fólk með þroskahömlun í Rensselaer County í New York ríki. Þar tók hann þátt í að loka sólahringsstofnunum og stofnanabundnum búsetuúrræðum fyrir fólk með þroskahömlun og í stað þess setja á laggirnar persónulegan og einstaklingsbundinn stuðning fyrir fólkið á eigin heimilum. Í fyrirlestrinum mun hann segja frá af hverju þessi breyting var framkvæmd og hvernig tókst til að koma á einstaklingsbundnum stuðningi.

Dr. Guy Caruso starfar við Institute on Disabilities við Temple University í Pensilvania. Hann hefur unnið að fræðslu og framþróun í þjónustu við fólk með þroskahömlun í meira en 40 ár, meðal allars að því að þróa mat á og eftirlit með búsetu fólks með þroskahömlun. Matið nefnist Independent Monitoring for Quality Program (IMP4Q) (Sjálfstætt eftirlit til at tryggja gæði þjónustunnar) og felst í því að fatlað fólk, fjölskyldumeðlimir og aðrir áhugasamir heimsækja búsetu og tala við notendur. Verkefni hefur verið starfrækt í 15 ár með mjög góðum árangri. Í fyrirlestrinum mun dr. Guy Caruso segja frá þessu verkefni og árangri þess við að ná fram breytingum á þjónustukerfinu.

Góður tími verður fyrir fyrirspurnir og umræður.
Ókeypis er á fundinn og hann öllum opinn.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt