Þroskahjálp merki
EN

Breytingar á skrifstofu Þroskahjálpar!

Anna Lára Steindal hefur verið ráðin verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna og fatlaðs fólks af erlendum uppruna, til eins árs. Þá mun Ásta Friðjónsdóttir, fulltrúi á skrifstofu minnka við sig vinnu.

Birt þann:

21.01.2020

Breytingar á skrifstofu Þroskahjálpar!

*AUÐLESIÐ NEÐST*

Anna Lára Steindal hefur verið ráðin verkefnastjóri í málefnum fatlaðra barna og ungmenna og fatlaðs fólks af erlendum uppruna (innflytjenda, hælisleitenda og flóttafólks). Undanfarin ár hefur hún sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði mannréttindamála, m.a. unnið að innflytjenda- og flóttamannamálum á vettvangi Rauða krossins, starfað sem verkefnisstjóri mannréttindamála hjá Akraneskaupstað og sinn fjölbreyttum verkefnum sem fyrirlesari og kennari í fullorðinsfræðslu, einkum á sviði sjálfbærni, fjölbreytileika og jafnra tækifæra í samfélagi.

Í starfi sínu hjá Akraneskaupstað verkstýrði Anna Lára stefnumótun í mannréttindamálum og kom einnig að mótun fjölmenningarstefnu fyrir Sandgerðisbæ. Árið 2014 fékk hún viðurkenningu Akraneskaupstaðar fyrir framúrskarandi störf að mannréttindamálum. Anna Lára er með meistaragráðu í heimspeki, með áherslu á siðfræði, samskipti og fjölbreytileika. Árið 2019 lauk hún diplómanámi um sjálfbærni og sjálfbærnikennslu frá The Earth Charter Education Center sem hefur aðsetur við Friðarháskólann í Kosta Ríka.

Anna Lára kom inn í starf Þroskahjálpar á síðasta ári við stofnun ungmennaráðs. Hún hefur nú verið ráðin til eins árs til þess að sinna verkefnum er varða málefni fatlaðra barna og ungmenna sem og fatlaðs fólks af erlendum uppruna, en Þroskahjálp hefur síðustu misseri lagt aukna áherslu á að styðja við þessa hópa samfélagsins.

Þá mun Ásta Friðjónsdóttir, fulltrúi á skrifstofu, minnka við sig vinnu vegna aldurs í byrjun febrúar. Á sama tíma styttum við símatíma samtakanna, sem verður nú frá kl. 10-14 alla virka daga.

*AUÐLESIÐ*

  • Anna Lára Steindal var að byrja að vinna hjá Þroskahjálp.
  • Anna Lára var ráðin í 1 ár til þess að sinna þeim málum sem snúast um fötluð börn og ungmenni og fatlað fólk sem er af erlendum uppruna, það eru flótta-fólk, innflytjendur og hælis-leitendur.
  • Anna Lára vann sem dæmi hjá Rauða krossinum, hjá Akranes-kaupstað og í fullorðins-fræðslu. Störf hennar tengjast fjölbreytileika og jöfnum tækifærum.
  • Anna Lára menntaði sig í heimspeki og sjálfbærni.
  • Ásta Friðjónsdóttir sem hefur unnið á skrifstofunni ætlar að minnka við sig í vinnu 1. febrúar. Hún vinnur nú frá klukkan 10 til 2.
  • Tíminn sem starfsfólk hjá Þroskahjálp svarar í símann hefur verið styttur og verður frá klukkan 10 til 2 alla virka daga. Skrifstofan er ennþá opin frá klukkan 9 til 4.
Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt