Þroskahjálp merki
EN

Breytingar á heimilisuppbót TR

Nú verður miðað við 18 til 25 ára aldur (í stað 18-20 ára) þegar metið er hvort lífeyrisþegi hafi fjárhagslegt hagræði vegna annarra heimilismanna við ákvörðun heimilisuppbótar, að ákveðnum öðrum formskilyrðum uppfylltum.

Birt þann:

04.08.2021

Breytingar á heimilisuppbót TR

Smelltu hér til að sjá auðlesinn texta

  • Nú var verið að breyta reglunum um heimilisuppbót.
  • Ef það býr manneskja á aldrinum 18 til 25 ára sem er í námi á heimilinu er hægt að fá heimilisuppbót.
  • Áður var það upp í 20 ára aldur.
  • Tryggingastofnun mun senda bréf á þá sem gætu átt núna átt rétt á heimilisuppbót.
  • Ef þú heldur að þetta eigi við um þig skaltu hafa samband við Tryggingastofnun.

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út breytingu á reglugerð nr. 120/2018 um heimilisuppbót. Breytingin tók gildi 12. júní 2021.

Nú verður miðað við 18 til 25 ára aldur (í stað 18-20 ára) þegar metið er hvort lífeyrisþegi hafi fjárhagslegt hagræði vegna annarra heimilismanna við ákvörðun heimilisuppbótar, að ákveðnum öðrum formskilyrðum uppfylltum.

Lífeyrisþegar hafa notið heimilisuppbótar ef einstaklingur á aldrinum 18 til 20 ára sem er í námi býr á heimilinu. Breytingin er að hækkað hefur verið upp í 25 ára aldur, að því skilyrði uppfylltu að heimilismaðurinn sé í námi.

TR mun á næstunni fara yfir hvaða viðskiptavinir falla undir þessa breytingu. Þeim verður sent bréf og kynntur mögulegur réttur á heimilisuppbót vegna þessarar breytingar.

Ef þú telur þig falla undir þessi skilyrði, þá hvetur TR fólk að sækja um heimilisuppbót að nýju eða hafa samband við TR og kanna málið.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt