Þroskahjálp merki
EN

Bréf til heilbrigðisráðherra um lög, reglur og framkvæmd varðandi fósturskimanir og fóstureyðingar m.t.t. Downs heilkennis o.fl.

Formenn Landssamtakanna Þroskahjálpar og Félags áhugafólks um Downs-heilkenni sendu heilbrigðisráðherra bréf 12. febrúar sl., þar sem fjallað er um fósturskimanir og fóstureyðingar, sérstaklega m.t.t. Downs-heilkennis. Í bréfinu er bent á að brýnt er og löngu tímabært að fram fari vönduð greining á lögum, reglum og framkvæmd varðandi fósturskimanir, og fóstureyðingar og þeim erfðafræðilegu, siðferðilegu og lagalegu álitamálum sem nauðsynlegt er að skoða ítalega í því sambandi.

Birt þann:

31.03.2016

Bréf til heilbrigðisráðherra um lög, reglur og framkvæmd varðandi fósturskimanir og fóstureyðingar m.t.t. Downs-heilkennis o.fl.

Formenn Landssamtakanna Þroskahjálpar og Félags áhugafólks um Downs-heilkenni sendu heilbrigðisráðherra bréf 12. febrúar sl., þar sem fjallað er um fósturskimanir og fóstureyðingar, sérstaklega m.t.t. Downs-heilkennis. Í bréfinu er bent á að brýnt er og löngu tímabært að fram fari vönduð greining á lögum, reglum og framkvæmd varðandi fósturskimanir, og fóstureyðingar og þeim erfðafræðilegu, siðferðilegu og lagalegu álitamálum sem nauðsynlegt er að skoða ítalega í því sambandi. Í bréfinu er skorað á heilbrigðisráðherra að grípa nú þegar til viðeigandi ráðstafana til að hafist verði handa við slíka greiningu. Þá segir í bréfinu að þannig greining og endurskoðun regluverks og framkvæmdar á grundvelli hennar sé nauðsynleg til að tryggt verði að regluverkið, stjórnsýslan, heilbrigðisþjónusta og upplýsingagjöf á þessu sviði verði örugglega nægilega vönduð og í fullu samræmi við kröfur sem gerðar eru í mannréttindasamningum sem íslenska ríkið hefur undirgengist og hyggst gangast undir á næstunni, s.s. samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Afrit af bréfinu var sent félags- og húsnæðismálaráðherra, innanríkisráðherra, allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, velferðarnefnd Alþingis, Landlækni og umboðsmanni Alþingis.

Bréfið má nálgast HÉR

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt