Umboðsmaður barna hefur nú birt upplýsingar um bið barna eftir þjónustu. Tölurnar eru verulega sláandi og sýnir að töluverð fjölgun hefur orðið á biðlistum.
Skoða upplýsingar Umboðsmanns barna
Alls bíða 522 börn eftir þverfaglegri greiningu hjá Ráðgjafa- og greiningarstöðinni í ágúst 2023. Af þeim voru 322 börn á aldrinum 0-6 ára og 200 börn 6-18 ára. 434 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði.
Einnig hefur orðið mikil fjölgun á biðlistum hjá Geðheilsumiðstöð barna frá því að Umboðsmaður barna kallaði eftir upplýsingum í desember 2021. Í ágúst 2023 biðu 1662 börn eftir greiningu en 1623 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. 416 börn biðu eftir einhverfugreiningu og meðalbiðtími eftir slíkri greiningu voru 26-28 mánuðir.
Biðlistar eftir talmeinafræðingum eru ekki aðgengilegir vegna þess að biðlistar og kerfi eru ekki samræmd. Upplýsingar frá því í desember 2021 kemur fram að 3701 barn hafi verið á biðlista en þarf af voru 947 börn skráð á fleiri en einu stað.
Staðan er óboðleg með öllu og þá sérstaklega með tilliti mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og þjónustu fyrir viðkvæmasta hóp barna sem þurfa sárlega ráðgjöf og úrræði til að bæta lífskjör þeirra.
Landssamtökin Þroskahjálp skorar á stjórnvöld að bregðast við stöðunni án tafar svo að lögin um farsæld barna nái fram að ganga.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
