Bókun 11. desember 2015 Ég undirrituð, fulltrúi Landssamtakanna Þroskahjálpar, í samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks, lýsi vonbrigðum með að loksamkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk, sem undirritað var í dag, skuli ekki taka til þeirra fötluðu einstaklinga sem nú búa á Landspítala í Kópavogi. Brýnt er að hlutaðeigandi stjórnvöld finni svo skjótt sem verða má lausn á þjónustu- og búsetumálum þeirra í samræmi við þarfir þeirra og réttindi
Bókun
11. desember 2015
Ég undirrituð, fulltrúi Landssamtakanna Þroskahjálpar, í samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks, lýsi vonbrigðum með að loksamkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk, sem undirritað var í dag, skuli ekki taka til þeirra fötluðu einstaklinga sem nú búa á Landspítala í Kópavogi. Brýnt er að hlutaðeigandi stjórnvöld finni svo skjótt sem verða má lausn á þjónustu- og búsetumálum þeirra í samræmi við þarfir þeirra og réttindi.
Gerður Aagot Árnadóttir
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.