Þroskahjálp merki
EN

Bifreiðastyrkir

Landssamtökin Þroskahjálp, Umhyggja og Tryggingastofnun ríkisins vilja vekja athygli á breyttu verklagi Tryggingastofnunar við afgreiðslu umsókna vegna bifreiðastyrkja til kaupa á sérútbúnum og dýrum bifreiðum vegna barna.

Birt þann:

14.06.2012

Bifreiðastyrkir

Breytt verklag er vegna nýrrar túlkunar úrskurðanefndar almannatrygginga á ákv.laga um bifreiðastyrki. Foreldrar hreyfihamlaðra barna sem njóta umönnunargreiðslna hafa hingað til getað fengið uppbót skv. 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 og styrk, að andvirði 1.200.000 kr. skv. 4. gr. sömu reglugerðar.

Úrskurðarnefndin taldi hins vegar að þessir aðilar geti einnig átt rétt á 50-60% styrk skv. 5. gr. rgl. að uppfylltum öðrum skilyrðum. Þessi breyting tekur eingöngu til þeirra barna sem eru verulega hreyfihömluð og uppfylla þau sérstöku skilyrði sem 5. gr. reglugerðarinnar setur til þess að hægt sé að kaupa sérútbúna og dýra bifreiða vegna mikillar fötlunar.

Rétt er að undirstrika að hér er ekki um almennan rétt foreldra hreyfihamlaðra barna sem njóta umönnunargreiðslu að ræða heldur verða þeir að uppfylla önnur ákvæði sem sett eru fyrir úthlutun styrksins. Tryggingastofnun metur hvort skilyrði eru uppfyllt í hverju tilviki fyrir sig.

Skilyrðin eru m.a eftirfarandi:
· „Bifreiðin sé nauðsynleg vegna þess að líkamsstarfsemi er hömluð eða vantar líkamshluta“
· „Einstaklingur kemst ekki af án sérútbúinnar og dýrrar bifreiðar vegna mikillar fötlunar“
· „ Heimildin á þó einungis við ef einstaklingurinn ekur sjálfur eða annar heimilismaður “

Ástæða er því til fyrir þá sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði að kanna sinn rétt og kynna sér betur ákvæði 10. gr laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð og reglugerðar nr. 170/2009.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt