Þroskahjálp óskar eftir tilnefningum fyrir Múrbrjótinn fyrir árið 2023.
Á hverju ári frá 1993, á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember, hafa Landssamtökin Þroskahjálp veitt viðurkenningu sína, Múrbrjótinn, þeim aðilum sem þykja hafa sýnt frumkvæði og ýtt undir nýsköpun varðandi þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og þannig sýnt mikilvægt frumkvæði og framtak við að brjóta niður múra í samfélaginu og viðhorfum fólks sem hindra að fatlað fólki fái þau tækifæri sem það á að njóta til jafns við aðra.

Frá afhendingu Múrbrjótsins 2022
Nú leitum við að tilnefningum ykkar fyrir þau sem hafa verið framúrskarandi á árinu 2023 þegar kemur að því að brjóta niður múra.
Þú getur sent okkur tölvupóst með nafni viðkomandi og ástæðu tilnefningarinnar.
Hægt er að skila inn ábendingum og tilnefningum til Múrbrjótsins á netfangið throskahjalp@throskahjalp.is
Tekið verður á móti tilnefningum fram til 13. nóvember.
Múrbrjóturinn er veittur til einstaklinga, fyrirtækja, verkefna og stofnana.
Stjórn samtakanna velur svo verðlaunahafann og er Múrbrjóturinn afhentur í tengslum við alþjóðadag fatlaðs fólks þann 3. desember.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
